| 03:45 | Skotflaug hæfði olíuskip á Hormússundi Olíuflutningaskip kemur til hafnar í Mumbai á Indlandi eftir siglingu um Hormússund.EPA / DIVYAKANT SOLANKIEngan sakaði þegar eldflaug hæfði olíuskip á siglingu um Hormússund. Bresku siglingamálastofnuninni UKMTO barst tilkynning um að skotflaug af óþekktum uppruna hafi hæft skipið og eldur kviknað um borð. Skamma stund hafi tekið að ráða niðurlögum hans.Ekki liggur fyrir hversu mikið skipið skemmdist í árásinni eða hvort leki hafi komið að því. Rannsókn er hafin en ekkert liggur enn fyrir um hvaðan flauginni var skotið.Íranar loka áfram fyrir nánast alla skipaumferð um sundið sem tengir Persaflóa og Indlandshaf. Um fimmtungur olíuflutnings veraldarinnar fer um Hormússund á friðartímum, sem er afar mikilvægt efnahagskerfi heimsins. | |
| 03:30 | Tímamet slegið í ferð að Alþjóðlegu geimstöðinni Tímamet var slegið þegar fjórir geimfarar á vegum bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA komu að Alþjóðlegu geimstöðinni í nótt með fari SpaceX. Áhöfn á vegum NASA hefur aldrei verið fljótari að stöðinni því ferðin þangað frá Canaveral-höfða á Flórída tók aðeins tæpar átta klukkustundir, 7 tíma og 55 mínútur nákvæmlega.Staðsetning stöðvarinnar á sporbaug einfaldaði málið. Þetta er þrettánda áhöfnin sem fer með Dragon-fari SpaceX að geimstöðinni og verður þar næstu sex mánuði. Leiðangursstjórinn Jessica Watkins sagði þrettán happatölu. Hún er fyrsta svarta konan til að leiða geimferð.Þetta er önnur dvöl Watkins í geimstöðinni því hún var hluti áhafnar sem dvaldi þar fyrir fjórum árum. Hinir þrír eru allir nýgræðingar í geimferðum, Bandaríkjamaðurinn Luke Delaney, Rússinn Sergey Teter-yatni | |
| 02:00 | Sprengingar í Jemen og eldflaugum grandað á leið til Sádi-Arabíu Fjölþjóðaher í Jemen undir forystu Sádi-Araba kveðst hafa grandað tveimur langdrægum eldflaugum sem komnar voru inn fyrir lofthelgi Sádi-Arabíu í nótt. Einnig hafi fjórir drónar verið skotnir niður.Herinn segir uppreisnarsveitir Húta standa að árásunum. Öflugar sprengingar kváðu við í jemensku höfuðborginni Sana'a í gær, sem Hútar kenna Sádum um.Árásir voru einnig gerðar á borgirnar Saada, Taiz og Amran að sögn fréttaveitunnar SABA sem Hútar stjórna. Sádiarabísk stjórnvöld hafa ekkert tjáð sig um árásirnar. Átök brutust út að nýju milli stjórnar- og fjölþjóðahersins og Húta í Jemen í júlí eftir nokkur tiltölulega róleg ár. | |
| 01:29 | Trump útilokar ekki að þrýsta á ESB-ríki að losa um dísilbirgðir Donald Trump segir ekki útilokað að Bandaríkin fari fram á að ríki Evrópusambandsins losi um varabirgðir dísils til að lækka olíuverð.Donald Trump útilokar ekki að þrýsta á ESB-ríki að losa um varabirgðir dísils.EPA / ALBERT PENARíki geyma varabirgðir af eldsneyti sem grípa má til komi upp neyðarástand. „Við gætum gert þetta, þeir eiga yfrið nóg af dísli,“ sagði Trump við blaðamenn á kosningafundi í Texas.Þessi yfirlýsing forsetans kemur í kjölfar kröfu fjármálaráðherrans Scott Bessent um að Evrópuríki losi um varabirgðir umsvifalaust. Trump sagðist á miðvikudag enn þá vera að íhuga útflutningsbann á dísil, sem gæti leitt af sér frekari verðhækkun í Evrópu. | |
| 00:40 | Umdeilt að danskur saksóknari beri höfuðslæðu Danski dómsmálaráðherrann hefur verið beðinn um að svara því hvort saksóknarar megi bera höfuðslæðu, eða hijab eins og hún heitir á arabísku.Danski saksóknarinn Zahra Sediqi skrifaði nýverið á samfélagsmiðilinn Linkedin að hún væri auðmjúk yfir því að vera sú fyrsta til að gegna því starfi í Danmörku sem einnig ber hijab. Fjölskylda Sediqi flúði til Danmerkur frá Afganistan þegar hún var fimm ára en hún hefur búið í landinu í 27 ár.Í kjölfar færslunnar lagði talsmaður útlendingamála hjá Danmerkurdemókrötunum, Dennis Flydtkjær, áðurnefnda fyrirspurn fyrir Nicolai Wammen dómsmálaráðherra. Hann benti á að síðan árið 2009 hafi það verið hluti af réttarfarslögum að dómarar megi ekki bera trúarleg tákn. ENGAR VERKLAGSREGLUR BANNA HIJAB Í skriflegu svari til danska ríkisútvarpsins, DR, segir s | |
Í gær, 1. október | ||
| 23:35 | Plínio Trump og Mick Jagger sækjast eftir þingsæti í Brasilíu Plínio Vicentin Júnior, 59 ára þyrluflugmaður, býður sig fram til brasilíska þingsins undir nafninu Plínio Trump. Hann er einn nokkur hundruð óvenjulegra frambjóðenda sem halda lífi í brasilískri kosningahefð sem nær aftur um nærri átta áratugi.Plínio líkir eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta í útliti og framkomu. Hann greiðir hárið á svipaðan hátt, klæðist löngu appelsínugulu bindi og hermir jafnvel eftir göngulagi forsetans.„Trump er viðkunnanlegur og goðsagnakenndur,“ sagði Plínio Trump við AP í Juiz de Fora. „Fáir hafa sýnt mér hæðnisglott. Flestir brosa og faðma mig.“Nokkur hundruð „grín“- eða mótmælaframbjóðendur sækjast eftir þingsætum í Brasilíu í ár. Hefðin er rakin aftur til sjötta áratugarins. Frambjóðendurnir þurfa að uppfylla sömu skilyrði og aðrir sem bjóða sig fram. NOKKU | |
| 23:15 | „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Hin fimmtuga Christa Pike, sem var dæmd til dauðarefsingar árið 1996, er enn á lífi en þó sögð í lífshættu eftir misheppnaða aftöku í gær. | |
| 22:00 | „Læknanemi“ ákærður í Skotlandi Stephen Simpson hefur játað á sig svik fyrir Sýslumannsrétti Aberdeen í Skotlandi auk einnar af fimm ásökunum um þjófnað. Svikin eru þó talin öllu alvarlegri en hvinnska hans þar sem Aberdeen-búinn villti á sér heimildir á Konunglega sjúkrahúsinu í Aberdeen og lést þar vera læknanemi í starfsnámi. | |
| 21:30 | Brást ókvæða við rukkun – 18 ár Héraðsdómur Södertörn í Huddinge, suðvestur af sænsku höfuðborginni Stokkhólmi, hefur kveðið upp átján ára fangelsisdóm yfir sextugum manni sem leigði einbýlishús í Älvsjö og skaut þrjá menn sem heimsóttu hann í maí til að innheimta leiguna. | |
| 21:00 | Flugstjórinn á góðum batavegi Sendiherra Indlands í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hitti í dag flugstjórann sem særðist í flugi flydubai í gær eftir að aðstoðarflugstjórinn réðst á hann. Sendiráðið segir hann vera við góða heilsu og á góðum batavegi. | |
| 20:00 | Hvernig komst eggvopnið inn í vélina? Ein af lykilspurningunum í tengslum við hnífstunguárásina um borð í flydubai-vélinni sem nauðlenti í Sádí-Arabíu í gær er hvernig aðstoðarflugmaðurinn, sem grunaður er um verknaðinn, komst með eggvopn um borð í flugvélina, hugsanlega jafnvel öxi, eins og Benjamín Natanjahú, forsætisráðherra Ísraels, hefur gefið í skyn. | |
| 19:01 | Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Bresk-íranskur ríkisborgari hefur verið handtekinn í Bretlandi þar sem hann grunaður um að skipuleggja hryðjuverk í tengslum við atvik við RAF Fairford-herstöðina um helgina. Breskir og bandarískir ráðamenn hafa sakað írönsk stjórnvöld um aðkomu að atvikinu en þau þvertekið fyrir það. | |
| 19:00 | Stefna ríkisstjórn Trumps Fjölskylda Renee Good hefur stefnt ríkisstjórn Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Good var skotin til bana af starfsmanni Útlendinga- og tollaeftirlits Bandaríkjanna (ICE) í Minneapolis í Minnesota-ríki í víðtækum aðgerðum alríkisyfirvalda fyrr á þessu ári. | |
| 18:50 | Ófremdarástand vegna mótmæla ungmenna í Frakklandi Framhaldsskólanemar í Frakklandi hafa komið saman víða um landið í dag til að mótmæla yfirfullum kennslustofum, skorti á kennurum, slæmu ástandi skólabygginga og miklum hita í kennslustofum þegar hitabylgjur hafa geisað í ár.Mótmælin hafa staðið síðan í síðustu viku og hafa ekki alltaf farið vel fram. Dæmi eru um að ráðist hafi verið á skólastjóra. Lögregla hefur handtekið hundruð nemenda á aldrinum 15 til 18 ára fyrir óspektir í dag. Ríkisstjórn landsins segir mótmælin hafa breyst í ofbeldi. Forsætisráðherra Frakklands, Sebastien Lecornu, hvatti alla ráðherra til að fresta ferðalögum um landið vegna ástandsins.Ófremdarástand hefur ríkt og yfir 160 skólum hefur verið lokað. Slökkvilið var kallað út í Nantes eftir að eldur var kveiktur við inngang framhaldsskóla.Í París, Marseille og víðar | |
| 18:30 | Fresta fyrirhuguðum aftökum Öllum aftökum í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum hefur verið frestað út árið eftir að tvær tilraunir til að taka konuna Christu Pike af lífi með banvænni sprautu mistókust. | |
| 18:07 | Marco Rubio á leið til Íslands Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Íslands í næstu viku eftir að hafa þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn. | |
| 17:46 | Írani handtekinn vegna Fairford-málsins 27 ára maður með breskt og íranskt ríkisfang hefur verið handtekinn í Bretlandi grunaður um undirbúning hryðjuverka. | |
| 17:26 | Utanríkisráðherra Bandaríkjanna væntanlegur til Íslands Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er væntanlegur til Íslands í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneyti Íslands. Þar segir að ráðherrann hafi þegið boð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um heimsókn til landsins.„Það er mikið ánægjuefni að Rubio hafi þegið heimboðið sem ég ítrekaði við hann í New York á dögunum. Samstarf Íslands og Bandaríkjanna stendur á traustum grunni og heimsókn hans hingað er til marks um það,“ er haft eftir Þorgerði Katrínu í yfirlýsingunni.Þar er enn fremur haft eftir utanríkisráðherra að það hafi verið sérstakt áherslumál hennar í embætti að styrkja tengsl Íslands við nánustu vina- og bandalagsríki beggja vegna Atlantshafsins. Stjórnvöld á Íslandi eigi í virku samtali við Bandaríkin um sameiginlega hagsmuni. Þar | |
| 17:24 | Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Starfsmaður á byggingarsvæði í Neskaupstað slasaðist alvarlega á þriðjudag þegar hann féll af svölum. Hann er ekki talin í lífshættu. | |
| 16:01 | Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Hundruð þúsunda Bandaríkjamanna hafa nú þegar greitt atkvæði í þingkosningum þar í landi þótt mánuður sé til kosninga. Kannanir benda til þess að kjósendur Demókrata séu duglegri að kjósa snemma en í síðustu forsetakosningum. | |
| 15:40 | Biður stjórnvöld Tennessee að gera ekki aðra tilraun til að lífláta Pike Mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, Volker Turk, brýnir fyrir stjórnvöldum í Tennessee í Bandaríkjunum að reyna ekki aftur að taka Christu Pike af lífi. Hún er á dauðadeild fangelsis í ríkinu og lifði af tvær aftökutilraunir í gær.Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi frestað tímabundið í ljósi þess að hún var enn á lífi eftir að hafa verið sprautuð tvisvar sinnum með eitri sem notað er við aftökur.„Mál Christu Pike sýnir glögglega hvers vegna ætti að afnema dauðarefsingu,“ segir Turk í yfirlýsingu á X. „Langvarandi þjáningar, andlegar og líkamlegar, sem hljótast af ítrekuðum misheppnuðum tilraunum til aftöku eru grimmilegar. Auk þess er ýmsum spurningum um réttláta málsmeðferð ósvarað.“Þá hvetur mannréttindastjórinn yfirvöld í Tennessee til þess að falla frá áformum um að re | |
| 14:46 | Af hverju var Christa Pike dæmd til dauða? Bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Christa Pike var dæmd til dauða fyrir manndráp fyrir um 30 árum, þegar hún var 18 ára. Hún varð þar með ein yngsta konan sem dæmd hefur verið til dauða í bandarískri réttarsögu.Umfjöllun um Pike hefur verið áberandi hjá erlendum fjölmiðlum síðustu daga.Pike hlaut dóminn fyrir manndráp sem hún framdi ásamt kærasta sínum í Knoxville í Tennessee árið 1995. Kærasti hennar var 17 ára og fékk því vægari dóm – lífstíðardóm með möguleika á skilorði.Þau voru sakfelld fyrir að bana hinni 19 ára Colleen Slemmer.Þriðji sakborningurinn í málinu var Shadolla Peterson, þá 18 ára, sem fékk skilorðsbundinn dóm því hún var samvinnuþýð í rannsókn yfirvalda.Pike sagði lögreglunni á sínum tíma að hún hefði verið afbrýði | |
| 13:44 | Hungur sverfur að Jemenum Sífellt fleiri börn í Jemen þjást af vannæringu. Eftir að stríðsátök brutust út á ný hafa 145.000 manns lagt á flótta. Alþjóða heilbrigðisstofnunin varar við því að heilbrigðiskerfi landsins sé komið að þolmörkum.Hörð átök brutust úr milli Húta og stjórnarhersins í Jemen í sumar og Hútar náðu völdum yfir strönd landsins að Rauðahafi. Átökin bitna harkalega á almennum borgurum. Áður en þessi átök brutust út var áætlað að rúmlega 2,2 milljónir barna yngri en fimm ára þjáðust af bráðri vannæringu.Fulltrúi UNICEF í landinu, Akhil Iyer, segir að vannæring barna hafi aukist mikið, þar á meðal alvarleg vannæring. Ný tilfelli vannæringar barna eru greind daglega, segir hann. Á blaðamannafundi á dögunum sagði hann frá Haifa, ungri móður, sem flýði heimili sitt á vesturströnd landsins. „Hún sagði ok | |
| 13:13 | Vilja að hætt verði við aftökuna Volker Türk, mannréttindastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti yfirvöld í Tennessee í Bandaríkjunum í dag til að hætta við frekari tilraunir til að taka Christu Pike af lífi. | |
| 13:09 | Fundu átta lík til viðbótar Björgunarsveitarmenn fundu í dag átta lík til viðbótar á svæðinu þar sem snjóflóð féll í Himalajafjöllum og gróf 16 leiðangursstarfsmenn. | |
| 12:48 | „Ég hef aldrei upplifað svona lagað“ Lögreglan í Ósló leitar nú tveggja manna, sem talið er að aki svörtum Golf, eftir að þeir rændu gullsmíðaverslun Per Egil Rui, West Sølv og Mynt, á Frogner í Ósló á ellefta tímanum í morgun að norskum tíma, með eggvopn á lofti. | |
| 11:50 | Trump: „Ofurgreind“ ekki gervigreind Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að hugtakið „gervigreind“ heyri sögunni til og að tæknin verði þess í stað kölluð „ofurgreind“, eða super intelligence. Þetta kom fram eftir fund forsetans með nokkrum af valdamestu stjórnendum tæknigeirans í Hvíta húsinu. | |
| 11:14 | Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Ríkisstjórn Donalds Trump er að sniðganga nokkra mikilvæga bandamenn Bandaríkjanna og evrópsk hergagnafyrirtæki fyrir fund sem halda á í mánuðinum. Fundurinn á að snúast um framtíð Atlantshafsbandalagsins en mörgum af þeim aðildarríkjum sem verja hvað mestu til varnarmála hefur ekki verið boðið á hann. | |
| 11:08 | Íhugar að hætta olíuvinnslu við Noreg Bandaríska olíufyrirtækið ConocoPhillips, sem árið 1969 – þá Phillips Petroleum – fann Ekofisk-olíusvæðið í Norðursjónum, íhugar nú að hætta starfsemi í Noregi og selja Noregshluta fyrirtækisins. | |
| 10:59 | Snekkja sökk eftir högg frá búrhval Fjórir skipverjar neyddust til að yfirgefa snekkju sína á Suður-Kyrrahafi eftir að búrhvalur braut skrokk hennar og skemmdi stýrið. | |
| 10:57 | Þakkaði blóðugum pípulagningamanninum Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels hældi í dag ísraelskum pípulagningamanni fyrir sína aðkomu að því að afstýra stórslysi í kjölfar þess að slagsmál brutust út í flugstjórnarklefa farþegaþotu sem flutti 174 farþega frá Dúbaí til Tel Aviv. | |
| 10:02 | Allt í hnút á Norður-Írlandi Sólveig Jónsdóttir, stjórnmálafræðingur og rithöfundur, er ekki bjartsýn á framtíð heimastjórnarinnar á Norður-Írlandi eftir að deilur blossuðu upp um göngu Óraníu-reglu mótmælenda í bænum Portadown. Sólveig þekkir afar vel til málefna á Írlandi og Bogi Ágústsson ræddi við hana í Heimsglugganum. Göngur Óraníu-reglunnar hafa mjög oft orðið tilefni blóðugra átaka. Þessi ganga í Portadown, sem kennd er við Drumcree-kirkjuna þar sem hún hefst, hefur verið bönnuð í næstum 30 ár. Sólveig segir sérkennilegt að leyfa hana aftur. Undir lokin var rætt um stjórnarkreppuna í Svíþjóð þar sem engin lausn virðist í sjónmáli. DRUMCREE-GANGAN HEFUR SÉRSTAKA ÞÝÐINGU Sólveig segir að Drumcree-gangan hafi vissulega sérstaka þýðingu af því að þarna séu mjög djúpar og sárar sögulegar ástæður sem liggi að bak | |
| 08:37 | Varaður við því að líf hans sé í hættu Rússneski stjórnarandstæðingurinn og skákgoðsögnin Garry Kasparov segist hafa verið varaður við því að líf hans sé í hættu. | |
| 08:35 | Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Svissneskir jöklar hafa rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum. Snjómagnið minnkaði um fimm og hálft prósent fyrstu átta mánuði þessa árs, samkvæmt árlegri skýrslu sem gefin hefur verið út, í kjölfar lítillar snjókomu að vetri og steikjandi hita að sumri. | |
| 08:32 | Rannsókn hafin á því sem gerðist Ríkissaksóknari Sameinuðu arabísku furstadæmanna segir að rannsókn sé hafin á atvikinu sem varð um borð í vél flugfélagsins flydubai til Ísraels í gær þegar annar flugmannanna var yfirbugaður. | |
| 08:07 | Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það. | |
| 07:54 | Fimmta dauðsfallið í Bandaríkjunum vegna mislinga Yfirvöld í Pennsylvaníu hafa staðfest fimmta dauðsfallið sem tengist mislingum á sama tíma og þúsundir nýrra tilfella hafa dreifst um Bandaríkin í verstu útbreiðslunni í landinu í 35 ár. | |
| 07:42 | Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Tveir Danir hafa verið dæmd fyrir að hafa stolið Pokémon-spilum að verðmæti 132 þúsund danskra króna, eða því sem nemur 2,4 milljónum íslenskra króna. Dönsk lögregla segir þjófnað á verðmætum Pokémon-spilum hafa færst í vöxt og biðla til eigenda að passa upp á dótið sitt. | |
| 07:26 | Verður ekki tekin af lífi á þessu ári Bandaríska ríkið Tennessee hefur ákveðið að konan sem átti að taka af lífi í gær verði ekki tekin af lífi á þessu ári. | |
| 07:26 | Aftakan misheppnaðist: Pike flutt á sjúkrahús Bandaríska ríkið Tennessee hefur ákveðið að fresta aftöku sem átti að fara fram síðar á þessu ári eftir að yfirvöldum mistókst að taka konu af lífi í ríkinu gær með banvænum lyfjaskömmtum. | |
| 07:21 | Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Bresk stjórnvöld segja skýrar vísbendingar um að Íranir eigi hlut að máli í atvikinu við RAF Fairford-herstöðina á Englandi, sem leiddi til þess að fimm ungir menn voru handteknir og þrír bílar gerðir upptækir, en grunur lék á um ætluð hryðjuverk. | |
| 07:06 | Á spítala eftir misheppnaða aftöku Tilraun til aftöku bandarískrar konu, sem var dæmd til dauða í Tennessee fyrir manndráp árið 1996, mistókst í gærkvöldi þegar hún lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk. | |
| 07:04 | Heiðraðir fyrir hetjudáð um borð í flugvélinni Isaac Herzog, forseti Ísraels, ætlar að afhenda fjórum Ísraelum viðurkenningu fyrir hetjudáð eftir að þeir tóku þátt í að yfirbuga annan af flugmönnum vélar flydubai sem var á leið til Tel Aviv í Ísrael í gær. | |
| 06:45 | Þúsundir heimavarnarliða í fjölmennustu æfingu frá lokum kalda stríðsins Þúsundir sjálfboðaliða í heimavarnarliði Danmerkur taka þessa dagana þátt í einhverri umfangsmestu æfingu sem haldin hefur verið frá lokum kalda stríðsins. Æfingin, sem gengur undir heitinu Blátönn, tekur til heimavarnarliða tengdum öllum deildum hersins og stendur fram á sunnudag.Samkvæmt nýju áhættumati danskra leyniþjónusta munu Rússar auka enn á fjölþáttaárásir á Vesturlönd og ríki Atlantshafsbandalagsins og það eykur mikilvægi æfinganna að mati Gunner Arpe Nielsen, undirhershöfðingja og yfirmanns heimavarnarliðsins.Hann segir í samtali við danska ríkisútvarpið að tilgangur æfingarinnar sé meðal annars að auka getu sjálfboðaliðanna til að takast á við fjölþátta ógnir. Verkefni heimavarnarliða líkist sífellt meira því sem þjálfaðir hermenn hafa sinnt hingað til sem skapi auknar kröfur u | |
| 05:30 | Fimmtug kona lifði af tvær aftökutilraunir í Tennessee Christa Gail Pike lifði af tvær aftökutilraunir.AP/Tennessee Department of Correction / UncreditedFimmtug bandarísk kona á dauðadeild fangelsis í Tennessee lifði af tvær aftökutilraunir í gærkvöld. Alríkisdómstóll fyrirskipaði að aftökunni skyldi frestað tímabundið í ljósi þess að Christa Gail Pike var enn á lífi eftir að hún hafði tvisvar verið sprautuð með pentóbarbítali, eitrinu sem notað er við aftökur í ríkinu.Hæstiréttur Tennessee ógilti úrskurðinn og ríkisstjórinn Bill Lee þvertók fyrir að náða Pike, samkvæmt fréttum NBC-fréttastöðvarinnar. Lögmenn hennar krefjast þess að ekki verði reynt að lífláta Pike að nýju. Hún var dæmd til dauða fyrir morð sem hún framdi ásamt kærasta sínum árið 1995 þegar hún var átján ára. | |
| 04:00 | Musk leikur stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíð hernaðar Auðkýfingnum Elon Musk er ætlað stórt hlutverk í nýrri áætlun um framtíðarhernað á vegum bandaríska varnarmálaráðuneytisins.Elon Musk er ríkasti maður heims og hefur fengið ýmis verkefni innan bandarískastjórkerfsins.EPA / SHAWN THEWRáðherrann Pete Hegseth tilkynnti þetta í ávarpi í herstöð í Virginíu-ríki í gær og sagðist vænta niðurstaðna úr verkefninu innan 3 mánaða. „Markmiðið er að horfa skapandi augum til þeirra breytinga sem framtíðin skapar stríðsrekstri og hvernig unnt verði að styrkja þá hernaðargetu sem við þegar ráðum yfir,“ sagði Hegseth.Hann tilkynnti jafnframt að fækkað hefði verið í hópi hershöfðingja og flotaforingja í Bandaríkjaher um fimmtung. Það hafi verið gert hvort tveggja með uppsögnum og fækkun stöðugilda innan hersins. | |
| 03:15 | Fimmta dauðsfallið í versta mislingafaraldri síðustu áratuga Heilbrigðisyfirvöld í Lancaster-sýslu í Pennsylvaniu í Bandaríkjunum staðfestu í gær fimmta andlátið þar í landi tengt mislingum. Alls hafa verið skráð tæplega 3.500 tilfelli mislinga í 47 ríkjum, samkvæmt tölum Sóttvarnastofnunar Bandaríkjanna, í þessum versta mislingafaraldri um 35 ára skeið.Í Pennsylvaniu eru skrásett 943 tilfelli. Yfirvöld segja hinn látna hafa verið óbólusettan án þess að tíunda það frekar. Allir sem látist hafa af völdum sjúkdómsins í ríkinu eru óbólusettir.Fjöldinn allur af Amish-fólki býr í sýslunni. Það er kristinn trúarhópur sem hafnar flestri nútímatækni. Til dæmis þiggja hlutfallslega færri úr þeim hópi bólusetningar en almennt gerist. Hvað eru mislingar? Mislingar er veirusjúkdómur sem er mjög smitandi og einkennist af hita og útbrotum um allan líkamann. Sjúkd | |
| 02:33 | Svissneskir jöklar hopað um 20% á fimm árum Á aðeins fimm árum hafa svissneskir jöklar skroppið saman um næstum því 20%. Til samanburðar má benda á að jöklarnir minnkuðu um 10% frá árinu 1990–2000. Það sýnir að jöklarnir bráðna sífellt örar.Árið 2026 mældist önnur hraðasta bráðnun jöklanna frá upphafi mælinga en 5,5% af umfangi svissnesku jöklanna hefur bráðnað það sem af er ári. HORFINN EFTIR TÍU TIL FIMMTÁN ÁR Matthias Huss, forstjóri jöklaeftirlits Sviss, segir í samtali við fréttaveituna AFP að þetta sé mikið hörmungarár. Sumarmánuðirnir hafi slegið hitamet hver á eftir öðrum og veturinn á undan hafi verið óvenju snjóléttur.Hann tekur Scex Rouge-jökulinn í norðanverðu landinu sem dæmi um það sem koma skal: „Þetta er jökull sem mun ekki lifa af,“ segir Huss. Ef fram heldur sem horfir telur hann að ísinn á jöklinum verði horfin | |
| 00:21 | Trump segir flugmanninn annaðhvort brjálaðan eða hryðjuverkamann Donald Trump Bandaríkjaforseti kveðst hafa rætt tilræði um borð í farþegaþotu FlyDubai í hörgul við Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels. Flestir farþeganna voru Ísraelsmenn og þarlend stjórnvöld líta á hnífaárás annars flugmannsins gegn hinum sem tilraun til að granda vélinni og þar með hryðjuverk. Trump sagði við blaðamenn á forsetaskrifstofunni í kvöld að hugsanlega væri flugmaðurinn hryðjuverkamaður eða brjálæðingur. „Hann stakk flugstjórann,“ sagði Trump og bætti við að enn væri flest á huldu um ástæður árásarinnar. Þotan var á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í gærmorgun. Farþegar yfirbuguðu árásarmanninn, sem talinn er hafa ætlað að brotlenda þotunni á ísraelsku landsvæði. Mikil skelfing greip um sig um borð í vélinni sem flutti um 150 farþega. Þotan féll um 17 þúsund fet meðan á | |
Í fyrradag, 30. september | ||
| 22:59 | Sjö drepin í skotárás í Sýrlandi Sjö voru drepin og fjögur særðust í skotárás á rútu í Homs-héraði í Sýrlandi í dag. Þetta segir fréttastofan Sana, sem er á vegum sýrlenska ríkisins. Að sögn fréttastofunnar er ekki búið að bera kennsl á árásarmennina.Heimildarmaður innan öryggissveita landsins, sem vildi ekki láta nafns síns getið, sagði við AFP-fréttaveituna fyrr í kvöld að fimm hefðu látið lífið.Mannréttindasamtökin The Syrian Observatory for Human Rights monitor, segir fórnarlömb árásarinnar öll tilheyra trúarhópi Alavíta. Hann hefur orðið fyrir ítrekuðum árásum undanfarin ár.Frá falli Bashars al-Assads Sýrlandsforseta og stjórnar hans hafa sýrlensk yfirvöld glímt við ítrekaðar árásir, meðal annars á höfuðborgina Damaskus og úthverfi hennar.Skömmu áður en árásin var gerð á rútuna greindi ríkisfjölmiðillinn frá því að s | |
| 22:10 | Höfuð- og útlimalaust lík ráðgáta Spænska Guardia Civil-lögreglan rannsakar nú höfuð- og útlimalaust karlmannslík í samstarfi við réttarmeinafræðistofnun í Valencia en það var fólk í siglingu á skemmtibáti sem fann líkið á floti í sjónum úti fyrir Sagunto, um 200 kílómetra norður af Alicante við austurströnd Spánar. | |
| 20:35 | Ófremdarástand í fangelsum: Allt að 140% nýting Dönsk fangelsi eru um þessar mundir svo yfirfull að í óefni stefnir, 4.650 fangar afplána nú í 4.300 rýmum, að sögn fangavarðastéttarfélagsins Fængselsforbundet. | |
| 20:30 | Bað kvenkyns starfsmenn að halda sig utan sjónmáls Patrick Branco Ruivo, forstjóri félagsins sem rekur Eiffelturninn í París, lætur af störfum í árslok vegna atviks sem kom upp fyrr í mánuðinum. | |
| 20:26 | Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu farinn að hafa töluverð áhrif á daglegt líf Stríðsrekstur Rússa í Úkraínu er farinn að hafa töluverð áhrif á daglegt líf Moskvubúa sem hafa þurft að lifa við rúmlega 40 prósenta verðbólgu síðan innrásin hófst og olíuskort vegna gagnárása Úkraínuhers. Jón Björgvinsson, fréttaritari RÚV, er í Rússlandi. Margar bensínstöðvar í Moskvu eru lokaðar og við þær sem eru opnar er röðin löng. Skorturinn fremur en bensínverðið veldur Rússum áhyggjum. Rússland er, eða var, annar stærsti hráolíuframleiðandi heims og því hvorki háð Hormússundi né heimsmarkaðsverði. Aftur á móti hafa drónaárásir Úkraínuhers á olíuhreinsistöðvar verulega dregið úr framboði. Verðhækkanir eru einnig miklar og fyrir Tatíönu, sem er eftirlaunaþegi, er sífellt erfiðara að láta þau duga fyrir innkaupunum. „Núna verðum við reglulega að láta okkur nægja að borða samlokur.“ | |
| 19:00 | Farþegarnir tjá sig: Hélt að dagar sínir væru taldir Farþegar um borð í flugvél á leið frá Dúbaí til Tel Avív þurftu að grípa inn í eftir að átök brutust út milli flugmanna vélarinnar og hún tók skyndilega að steypast niður. | |
| 17:45 | Handteknir vegna skotárásar í Noregi Lögreglan í austurumdæminu í Noregi handtók í dag þrjá menn í tengslum við skotárás á íbúð í Sand í Jessheim, rúma 40 kílómetra norðaustur af Ósló, í síðustu viku. | |
| 16:57 | Burnham segir sterkar vísbendingar um að Íran tengist atviki við flugvöll Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir sterkar vísbendingar um að stjórnvöld í Íran tengist dularfullu atviki við flugvöll á Englandi um helgina. Verið er að rannsaka hvort nokkrir ungir menn hafi ætlað að fremja þar ódæðisverk. Bandaríkin nýttu sér flugvöllinn í árásum á Íran.Burnham sagði í samtali við BBC, breska ríkisútvarpið, í dag að að flókin lögreglurannsókn standi yfir. Sendiráð Írans í Bretlandi hafði áður lýst því yfir að stjórnvöld í Íran væru ekki viðriðin málið á neinn hátt. Í yfirlýsingu sendiráðsins voru vangaveltur um að Íran hafi átt hlut að máli fordæmdar.Lögregla tilkynnti í gær að engin sprengiefni hefðu fundist á vettvangi við flugvöllinn. Stjórnvöld hafa ekki gefið út hvers konar hætta hafi verið á ferðum þar.Íbúi sem hringdi á lögreglu á sunnudagsmorgunn hafð | |
| 16:34 | „Sterkar vísbendingar“ um aðild Írana Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, segir „sterkar vísbendingar um Íranir hafi komið nálægt sprengjuhótun sem átti sér í nágrenni Fairford-herstöðvarinnar, þar sem vart var við grunsamlegar mannaferðir á sendibíl á sunnudagsmorgun. | |
| 16:03 | Aftökunni frestað vegna kynferðisbrota í æsku Aftöku Christu Pike var í dag frestað aðeins nokkrum klukkustundum áður en hún átti að fara fram þar sem talið er að ekki hafi verið tekið nægilegt tillit til þess að Pike hafi sjálf orðið fyrir kynferðisofbeldi í æsku. | |
| 16:02 | Ísraelar telja árás í flugvél tilraun til hryðjuverks Stjórnvöld í Ísrael telja að annar flugmaður flugvélar á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í morgun hafi ætlað að brotlenda vélinni og drepa alla farþega um borð. Flugmaðurinn stakk kollega sinn og var yfirbugaður af farþegum.Mikil skelfing greip um sig um borð í flugvélinni sem var að lokum lent í Sádí-Arabíu. Um 150 farþegar voru um borð, flestir Ísraelar. Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, sagði í ávarpi í dag að flugmaðurinn hefði lagt til atlögu við hinn þegar flugvélin nálgaðist Ísrael og að talið væri að hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk.Verið er að rannsaka hvað gerðist um borð í vélinni. Farþegar hafa lýst því þannig að öskur hafi heyrst frá flugstjórnarklefanum og að annar flugmaðurinn hafi stungið hinn. Farþegum hafi tekist að yfirbuga árásarmanninn.Flugferðin var á vegu | |
| 15:50 | Fresta aftökunni Bandarískur dómstóll frestaði í dag aftöku Christu Pike í Tennesse-ríki skömmu áður en taka átti hana af lífi með banvænni sprautu. Þetta hefði verið fyrsta aftaka konu í Tennessee-ríki í meira en 200 ár. | |
| 15:44 | Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Farþegar hjálpuðu til við að yfirbuga annan flugmann vélar Flydubai sem var á leið frá Dúbaí til Tel Avív í morgun. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísraels segir flugmanninn hafa stungið kollega sinn í flugstjórnarklefanum með hníf og hafi ætlað að brotlenda vélinni. | |
| 15:19 | Rússnesk stjórnvöld sögð hafa lagt á ráðin um að myrða Kasparov Rússneskir leyniþjónustumenn lögðu á ráðin um drepa Garry Kasparov, stórmeistara í skák, og Ilya Ponomarev, fyrrum þingmann á rússneska þinginu. Frá þessu greinir spænski fjölmiðillinn El Mundo.Fram kemur í umfjölluninni að bandarísk stjórnvöld hafi varað Kasparov við í sumar að menn tengdir rússnesku leyniþjónustunni vildu ráða hann af dögum. Eftir það fékk hann öryggisgæslu í fyrsta sinn síðan hann flutti til New York. Hann hefur gagnrýnt Pútín og stjórnvöld í Rússlandi harðlega og yfirgaf landið fyrir fullt og allt 2013.Rússneskir leyniþjónustumenn skipulögðu einnig morð á Ilya Ponomarev og segir í umfjöllun El Mundo að sá undirbúningur hafi verið lengra á veg kominn. Sá sem hafi átt að fremja ódæðið hafi hætt við.Rússneska leyniþjónustan skipulagði einnig morð í Vilníus í Litáen. Þar v | |
| 15:10 | Reyna að slá út hita og rafmagn fyrir kuldatíð Rússar hæfðu í dag mikilvæga orkuinnviði Úkraínu í bylgju mannskæðra dróna- og flugskeytaárása. | |
| 14:56 | Harðar árásir Rússlandshers á orkuinnviði Úkraínu í nótt Rússlandsher gerði í nótt harðar árásir á orkuinnviði í Úkraínu. Síðustu ár hefur herinn gert árásir á orkumannvirki með þeim afleiðingum að fjöldi Úkraínumanna hefur verið án hita og rafmagns í vetrarkulda.Forsætisráðherra Úkraínu, Serhii Koretskyi, segir í færslu á Telegram að varla hafi komið sá dagur síðan í sumar að Rússar hafi ekki gert árásir á orkuinnviði. „En svona harðar árásir eins og núna höfum við ekki séð síðan síðasta vetur.“Rafmagnslaust var í sumum hverfum Kyiv og víðar eftir árásirnar, greinir úkraínski fjölmiðillinn Kyiv Independent frá. Rússlandsher drap hið minnsta þrjá og særði sjö í Kyiv og nágrenni í árásum í nótt.Fólk skoðar skemmdir eftir árásir Rússlandshers á Kyiv og nágrenni í nótt.AP / Evgeniy Maloletka | |
| 14:39 | Útilokar ekki inngöngu í ESB: „Velkomin aftur“ Andy Burnham forsætisráðherra Bretlands segir að innganga landsins í Evrópusambandið að nýju sé meðal þess sem ríkisstjórn hans muni skoða þegar kemur að framtíðarsambandi Bretlands og Evrópu. | |
| 14:36 | „Komu í veg fyrir stórslys“ Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að annar flugmanna flydubai-flugvélar á leið til Tel Avív, en vélinni var breytt um leið, hafi ætlað að brotlenda henni og drepa farþegana, sem flestir voru Ísraelar, en þeir hafi komið í veg fyrir stórslys. | |
| 14:15 | Gervigreind kenndi sýklavopnagerð Kínverska gervigreindarfyrirtækið Moonshot hefur hleypt af stokkunum rannsókn innanhúss eftir að öryggissérfræðingum tókst að fá tvö af vinsælum „Kimi“-gervigreindarlíkönum fyrirtækisins til að útskýra hvernig framleiða mætti sýklavopn. | |
| 14:07 | Lögðu hald á 50 milljónir evra í bækistöðvum Vítisengla í fjórum löndum Lögregla í fjórum Evrópulöndum gerðu rassíur í bækistöðvum Vítisengla á yfir hundrað stöðum vegna gruns um peningaþvætti, fjársvik, vopnalaga- og ofbeldisbrot, auk annarra brota.Þýska lögreglan sagðist í tilkynningu hafa ráðist í aðgerðina ásamt yfirvöldum í Belgíu, Hollandi og Búlgaríu og að rannsóknin beinist að 71 liðsmanni mótorhjólagengis, sem þýskir fjölmiðlar herma að sé Vítisenglar.Á annan tug voru handteknir og lögregla lagði hald á eignir að andvirði tæplega fimmtíu milljóna evra; jafnvirði yfir sex milljarða króna.Þýska dagblaðið Bild greinir frá því að rannsóknin hafi staðið í rúmlega fjögur ár, í kjölfar skotárásar í Duisburg vorið 2022 sem var rakin til uppgjörs milli hópa. | |
| 13:35 | Styrkir til hugveitu taldir til góða fyrir Noreg Forsætisráðherra Noregs, Jonas Gahr Støre, segir framlög norska ríkisins til hugveitu með tengsl við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein hafa verið talin til góða fyrir Noreg. Forsætisráðherrann sat fyrir svörum hjá þingnefnd í morgun vegna fjarframlaganna á tíma hans sem utanríkisráðherra.Tveir núverandi og níu fyrrverandi ráðherrar í Noregi sitja í vikunni fyrir svörum þingnefndar sem rannsakar menningu innan utanríkisþjónustunnar. Þetta var ákveðið eftir að tengsl norskra ráðamanna við kynferðisbrotamanninn Epstein komu í ljós. Fundur nefndarinnar ber yfirskriftina Stjórn og menning í utanríkisþjónustunni og er opinn. AUKINN STUÐNINGUR ÞEGAR STØRE VAR UTANRÍKISRÁÐHERRA Bandaríska hugveitan International Peace Institute fékk yfir 130 milljónir norskra króna frá norska ríkinu frá 199 | |
| 13:26 | Fyrsta konan tekin af lífi í yfir 200 ár Fyrsta konan verður tekin af lífi í dag í yfir 200 ár í Tennesse-ríki í Bandaríkjunum, samkvæmt bandarískri miðstöð um dauðarefsingar. | |
| 13:12 | Segir að flugmaðurinn hafi reynt að brotlenda vélinni Farþegi í flugvél flydubai sem var á leið til Tel Aviv í Ísrael en var breytt um leið sagði að annar flugmaðurinn hefði reynt að brotlenda vélinni og drepa alla um borð. | |
| 11:38 | Dæmdir í kjölfar banaslyss Skipstjóri norska flutningaskipsins Misje Verde og hafnsögumaður, sem um borð var, hlutu í morgun tveggja ára skilorðsdóma og sektir fyrir Héraðsdómi Gautaborgar í Svíþjóð, meðal annars fyrir manndráp af gáleysi, fyrir að hafa siglt á skemmtibát fjölskyldu í Hakefjorden, úti fyrir Tjörn, að kvöldi 28. júlí. | |
| 11:25 | Flugmenn fluttir á sjúkrahús Talsmenn flugvallarins í Tabuk í Sádí-Arabíu greindu frá því í dag að flugstjóri og aðstoðarflugmaður frá flydubai, sem var beint til Sádí-Arabíu á leið til Tel Avív, fyrri í morgun, hefðu báðir slasast og verið fluttir á sjúkrahús. | |
| 11:21 | Flugmaður sagður hafa stungið kollega sinn í háloftunum – Farþegar með flugmannspróf lentu vélinni Flugmaður flugvélar á leið frá Dúbaí til Tel Aviv stakk kollega sinn í morgun, hafa ísraelskir fjölmiðlar eftir farþegum vélarinnar. Neyðarkall barst eftir tveggja tíma flug og var vélinni lent í Sádí-Arabíu.Flugfélagið Flydubai hefur staðfest að atvik hafi komið upp í fluginu og að allir farþegar séu heilir á húfi. BBC greinir frá því að neyðarkall hafi verið sent eftir slagsmál milli flugstjóra og flugmanns.Ísraelski fjölmiðillinn The Jerusalem Post greinir frá því að annar flugmaðurinn hafi stungið hinn og að farþegar hafi aðstoðað við að yfirbuga árásarmanninn. Þá hefur fjölmiðillinn eftir einum farþeganna að tveir flugmenn sem hafi verið um borð hafi tekið við stjórn vélarinnar. Tannlæknir hafi verið í vélinni og að sá hafi beitt skyndihjálp til að bjarga lífi flugmannsins sem var stu | |
| 11:01 | Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Stórmeistarinn Garry Kasparov er á meðal nokkurra rússneskra andófsmanna sem stjórnvöld í Kreml hugðust ráða af dögum í sumar. Bandarísk stjórnvöld ákærðu nýlega fimm leyniþjónustumenn í Rússlandi fyrir að leggja á ráðin um launmorð og skemmdarverk. | |
| 10:41 | Rannsaka hvort flugmaðurinn hafi reynt að fremja sjálfsvíg Ísraelskir fjölmiðlar, sem vitna í nafnlausar heimildir, greina frá því að farþegar um borð í farþegaþotunni sem var á leið til Dúbaí til Tel Avív og þurfti að nauðlenda í Sádí-Arabíu hafi gripið inn í til að skilja flugmennina að í átökum þeirra og birt myndir af farþega í blóðugum stuttermabol. | |
| 10:35 | Støre fyrir þingnefnd vegna Epstein-mála Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs situr nú fyrir svörum hjá eftirlits- og stjórnskipunarnefnd Stórþingsins, meðal annars um spillingarmál tengd Jeffrey Epstein og óeðlilega styrki Noregs til hugveitu Terje Rød-Larsen. | |
| 10:16 | Útilokar ekki að skoða inngöngu í ESB Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, segir að umsókn um inngöngu í Evrópusambandið sé einn þeirra möguleika sem ríkisstjórnin gæti skoðað til að efla sambandið við Evrópu.Hann hefur sagt að stöðnun og sundrungu í Bretlandi megi rekja til Brexit og því ætli hann að skoða alla kosti í stöðunni.Þegar Burnham bauð sig fram í aukakosningum í Makerfield í sumar sagðist hann ekki ætla að leggja til að Bretland gangi aftur í ESB.Bretar samþykktu í þjóðaratkvæðagreiðslu 2016 að ganga úr Evrópusambandinu. Úrsögnin tók formlega gildi í árslok 2020.Andy Burnham tók við embætti forsætisráðherra Bretlands í júlí.AP / Kin Cheung | |
| 09:44 | Støre krafinn svara um styrki til hugveitu með tengsl við Epstein Hvers vegna voru framlög norska ríkisins til hugveitu í New York aukin mikið eftir að Jonas Gahr Støre tók við embætti utanríkisráðherra 2005? Þetta er meðal þeirra spurninga sem Støre þarf að svara stjórnarskrárnefnd norska þingsins í dag.Støre, auk Espens Barth Eide, sem núna gegnir embætti utanríkisráðherra, hefur verið kallaður fyrir nefndina í dag og á morgun, auk níu fyrrverandi ráðherra. Fundur nefndarinnar ber yfirskriftina Stjórn og menning í utanríkisþjónustunni og er opinn.Norska Stórþingið samþykkti fyrr á árinu að skipa óháða rannsóknarnefnd eftir að dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna afhjúpaði skjöl tengd Epstein og í ljós kom að áhrifafólk í Noregi var sumt í nánum tengslum við kynferðisbrotamanninn.Bandaríska hugveitan International Peace Institute fékk yfir 130 milljónir nors | |
| 09:28 | Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Farþegaþotu á leið frá Dúbaí til Tel Aviv í Ísrael var beint til Sádí-Arabíu eftir „slagsmál“ milli tveggja flugmanna vélarinnar. Áhöfn vélarinnar naut aðstoðar farþega við að yfirbuga annan flugmanninn og binda hendur hans fastar. | |
| 09:11 | Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Á fimmta hundrað manns, að stærstum hluta börn, voru handtekin í Frakklandi í gær eftir að nemendur á unglingastigi lokuðu skólum sínum víðs vegar um landið í mótmælaskyni við of stóra bekki, kennaraskort og langan skóladag. | |
| 08:40 | Heyrðu öskur og svo steyptist þotan niður Óljóst er enn hvað átti sér stað en hermt er meðal annars að annar flugmannanna hafi ætlað að steypa vélinni til jarðar. | |
| 08:15 | Karl og kona fundust látin: Rannsakað sem morð Í morgun fundust karl og kona látin í íbúð í sænska bænum Eslöv. Mikill viðbúnaður lögreglu er á svæðinu og lögreglan rannsakar málið sem morð að því fram kemur í frétt sænska ríkisútvarpsins, SVT. | |
| 07:27 | Gruna Selenskí um græsku Njósnastofnun Suður-Kóreu telur að Volodimír Selenskí Úkraínuforseti gæti sjálfur hafa sagt frá flutningi tveggja norðurkóreskra hermanna til Suður-Kóreu í von um aukinn stuðning almennings í landinu við að útvega Úkraínumönnum vopn. | |
| 07:15 | Einn fimmmenninganna við Fairford hringdi sjálfur í lögregluna Neyðarlínu barst símtal frá einum þeirra fimm sem grunaðir eru um einhvers konar afbrot við Fairford-herflugvöllinn í Bretlandi.EPA / NEIL HALLSímtalið barst um það bil klukkustund áður en kona tilkynnti um grímuklædda menn á bílum nærri flugvellinum.BBC og The Times greindu frá þessu í morgun en ekkert liggur fyrir hvað manninum og lögreglu fór á milli. Fimmmenningarnir voru upphaflega handteknir grunaðir um skipulagningu hryðjuverks en var fljótlega sleppt. Lögregla fann ekkert sprengiefni í bílum mannanna. | |
| 07:07 | Einn mannanna hringdi sjálfur í neyðarlínuna Einn mannanna fimm sem voru handteknir skammt frá Fairford-herstöðinni í Bretlandi hringdi sjálfur í neyðarlínuna. | |
| 07:01 | Þetta eru öldungadeildarsætin sem gætu ráðið úrslitum fyrir lokasprett Trumps á forsetastóli Bandaríkjamenn ganga senn að kjörborðinu og kjósa til þings. Hinn 3. nóvember eru öll 435 sætin í fulltrúadeildinni í húfi og 35 sæti af hundrað í öldungadeildinni.Demókratar hafa lagt ofuráherslu á að ná stjórn á annarri eða báðum deildum þingsins til að geta staðið í vegi fyrir ætlunum Donalds Trump forseta.Fulltrúadeildin getur til dæmis sett á laggirnar ýmis konar rannsóknarnefndir sem mega kalla stjórnarliða til skýrslutöku og heldur auk þess um pyngju alríkisstjórnarinnar. Þar að auki getur fulltrúadeildin kært forseta til embættismissis, eins og gerðist á fyrra kjörtímabili Trumps. ÖLDUNGADEILDIN Í AUGSÝN FYRIR DEMÓKRATA Það eru gömul sannindi og ný að flokkur forsetans kemur illa út úr kosningunum á miðju kjörtímabili hans. Sem dæmi má nefna að í 38 af síðustu 42 miðkjörtímabils | |
| 06:10 | Talsverðu magni af haldlögðu kókaíni skipt út fyrir hveiti Miklu magni af kókaíni, pökkuðu í plast, hefur verið stolið úr sönnunargagnageymslu í byggingu hæstaréttar Fiji-eyja í höfuðborginni Suva. Hveiti var skilið eftir í staðinn. Rannsóknarlögreglumenn hafa síðan í gær farið yfir allar vísbendingar um hvað kunni að hafa orðið af tugum pakkninga sem innihéldu eiturlyfið.Lögreglan lagði hald á 39 eins kílógramma pakkningar af kókaíni í rassíu fyrir sjö árum. Þá var alveg öruggt að innihaldið var kókaín, að sögn lögregluyfirvalda. Fyrr á þessu ári kom í ljós að sjö pakkningar voru horfnar.Þá ákváðu yfirvöld að kanna innihald hinna, sem reyndist vera hveiti, eins og áður sagði, en ekki arða af kókaíni.Þótt eyjarnar séu þekktastar fyrir stórkostlegar strendur sem laða að sér fjölda ferðamanna ár hvert hafa þær á síðari árum orðið viðkomustaður fíkni | |
| 05:57 | Stefnir í stjórnarkreppu í Svíþjóð Stjórnarmyndunarviðræður hafa gengið fremur brösuglega eftir kosningar í Svíþjóð og stjórnarkreppa gæti verið í uppsiglingu. Fyrir hádegi fara formenn flokkanna á fund þingforseta og gert er ráð fyrir að einhverjum þeirra verði falið að vera næstur til að spreyta sig á viðræðum.Vart mátti greina mun á milli hægri og vinstri vængs eftir kosningarnar, svo jafnt féllu atkvæðin en vinstrimenn voru skör framar.Jafnaðarmannaflokkurinn var sigurvegari kosninganna og stærstur flokka á vinstri vængnum með 28% atkvæða en Moderaterna voru næst stærstir með 19,8% atkvæða.Magdalena Andersson er formaður Jafnaðarmanna og Ulf Kristersson er fráfarandi forsætisráðherra og formaður Moderaterna. Andersson hefur þegar gert tilraun til að mynda ríkisstjórn en á mánudaginn lagði hún árar í bát.Var það vegna þe | |
| 04:45 | Zelensky sagður hafa ljóstrað upp um flutning norðurkóreskra stríðsfanga til að tryggja stuðning við vopnasölu Njósnastofnun Suður-Kóreu telur að Volodymyr Zelensky hafi greint frá flutningi tveggja norðurkóreskra stríðsfanga frá Úkraínu til Suður-Kóreu til þess að auka almennan stuðning þarlendis við vopnasendingar til Úkraínuhers.Suðurkóreskur þingmaður gerði þessu skóna í gær og annar upplýsti að stríðsfangarnir hefðu komið til landsins um miðjan september. Þeir væru almennt við góða heilsu og hefðu sjálfir fallist á flutning þangað.Þar vildu þeir fá tækifæri til að „lifa eðlilegu lífi“, eins og það var orðað. Deilan gæti orðið til að tefja ákvörðun Suður-Kóreumanna um að senda Úkraínumönnum varnarvopn enda hafa þeir verið tregir til þess vegna banns við sölu árásarvopna til ríkja sem standa í stríði.Zelensky sagði frá flutningi hermannanna tveggja frammi fyrir allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna | |
| 03:59 | Minnst einn drepinn í eldflauga- og drónaárás á Kyiv Slökkvilið glímir við eld eftir dróna- og eldflaugaárás Rússlandshers 28. september.EPA / SERHII DILINAð minnsta kosti einn var drepinn og þrír til viðbótar særðust í eldflauga- og drónaárás Rússlandshers á úkraínsku höfuðborgina Kyiv og nærliggjandi héruð í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu hermálayfirvalda í Kyiv.Innviðir eru sagðir hafa laskast í árásunum ásamt íbúðarhúsum, vöruskemmum og farartækjum. Borgarstjórinn Vitali Klitschko sagði í færslu á Telegram fyrr í nótt að eldar loguðu í íbúðahverfi í Kyiv. | |
| 02:59 | Forsetinn viðurkennir misnotkun laga um hatursorðræðu við handtöku stjórnarandstæðinga Delcy Rodriguez, sem hefur verið bráðabirgðaforseti Venesúela síðan í janúar, viðurkenndi í gær að lög landsins um hatursorðræðu hefðu verið misnotuð til réttlætingar handtökum á tugum andstæðinga stjórnvalda.Undanfarinn áratug hafa tugir stjórnmálaleiðtoga, andófsfólks, blaðamanna, mótmælenda og áhrifavalda verið handteknir sakaðir um að kynda undir hatursorðræðu. Stjórnarandstaðan segir lögin hafa verið notuð sem ofsóknartæki til að bæla niður allt andóf.Slík brot geta leitt af sér allt að tuttugu ára fangavist. Bandaríkjastjórn þrýsti á Rodriguez að beita sér fyrir sakaruppgjöf hundraða fanga sem margir höfðu hlotið dóm á grundvelli laganna.Forsetinn hefur hvatt þjóðþingið til að endurskoða ákvæði laganna og afglæpavæðingar þeirra brota sem þar eru tiltekin. Mannréttindasamtökin Foro Pe | |
| 02:00 | Pentagon semur við Boeing um smíði nýrrar kynslóðar orrustuþotna Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur samið við Boeing um smíði næstu kynslóðar árásar- og orrustuþotna fyrir sjóherinn. Samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins er þotunum ætlað að leysa Super Hornet-vélar af hólmi frá og með fjórða áratug aldarinnar.Samningurinn er hluti áætlunar um aukin yfirráð Bandaríkjanna í háloftunum. Þotunum er ætlað að verða langfleygari og sterkari en eldri kynslóðir og geta unnið með ómönnuðum kerfum.Þetta er í annað sinn í síðari forsetatíð Donalds Trump sem Boeing verður fyrir valinu við smíði nýrra þotna eftir að fyrirtækinu var í mars á síðasta ári falin framleiðsla nýrrar hulduþotu fyrir flugherinn.Steve Parker, yfirmaður varnarmála-, öryggis- og geimferðadeildar Boeing, segir fyrirtækið hafa fjárfest í samræmi við að það fengi þessi tvö verkefni og segir allt | |
| 01:15 | Fjallasýn endurheimt í Peking Ánægjuleg þróun hefur orðið á loftgæðum í Peking, höfuðborg Alþýðulýðveldisins Kína á síðustu árum. Þar blasir nú fjallahringurinn við flesta daga en fyrir fjórtán árum sást hann örsjaldan í gegnum mengunarmistrið. Jón Óskar Sólnes veltir fyrir sér andrúmsloftinu sem hann andar að sér í Peking. Loftgæðin eru þar allt önnur en var.Það þarf ekki að fara mörg ár aftur í tímann til að rifja upp það orðspor sem fór af loftmenguninni í borginni. Loftgæðin voru talin afleit og beinlínis heilsuspillandi. Í útjaðri Peking voru starfræktar verksmiðjur sem margar voru reknar af kolaframleiddu rafmagni, einhverjum versta vágesti sem um getur í loftslagsmálum. Með aukinni velmegun fjölgaði einkabifreiðum algjörlega hömlulaust að því er virtist og reiðhjólum fækkaði til muna.Milljónir heimila voru hituð | |
| 00:16 | Gömul hjörtu yngjast í ungu fólki Ný rannsókn sýnir að aldur hjartaþega segi meira til um hjartaheilsu frekar en aldur hjartagjafa. Nature greinir frá en rannsóknin er enn óbirt og óritrýnd.Þannig lækkar líffræðilegur aldur hjarta sem grædd eru úr eldri einstaklingi í yngri eftir ígræðslu. Að sama skapi hækkar líffræðilegur aldur hjartans sé það fært úr yngri einstaklingi í eldri.Með líffræðilegum aldri er átt við uppsafnaðan frumuskaða yfir líftíma hjartans. RANNSÓKNIR Á BÆÐI MÚSUM OG MÖNNUM Jesse Poganik fer fyrir teymi sem rannsakar öldrun við Harvard-háskóla í Bandaríkjunum. Í fyrri hluta rannsóknarinnar græddi teymið misgömul viðbótarhjörtu í mýs á mismunandi aldri. Nokkrum mánuðum seinna voru mýsnar drepnar og mælingar gerðar á metýleringu erfðaefnis þeirra. Metýleringu erfðaefnis má nota til að ákvarða líffræðile | |
Þriðjudagur, 29. september | ||
| 23:49 | Flókin staða á sænska þinginu Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, mun funda aftur með formönnum flokkanna á þingi á morgun og ræða stjórnarmyndun. | |
| 23:43 | Gera 2.400 milljarða herþotusamning við Boeing Bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur valið flugvélaframleiðandann Boeing til að smíða næstu kynslóð orrustuþotna fyrir sjóherinn samkvæmt samningi sem metinn er að verðmæti 20 milljarða bandaríkjadala, eða um 2.400 milljarða íslenskra króna, að því er bandarískir embættismenn greindu frá fyrr í kvöld. | |
| 23:12 | Gagnslítil gagnaver í Noregi Norskum iðnaði stendur stuggur af því að níu af hverjum tíu gagnaverum í Noregi eru í eigu erlendra aðila, nota óheyrilega mikið rafmagn, skapa sárafá varanleg störf og leggja nánast ekkert til samfélagsins. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu norska tækniráðsins sem varar við þróun sem geti orðið ógn við þjóðaröryggi. | |
| 23:10 | Spænsk stjórnvöld svara ákalli leigjenda Ríkisstjórn Spánar hefur samþykkt nýjar aðgerðir í húsnæðismálum í kjölfar mótmæla við þeirri húsnæðiskreppu sem leigjendur landsins standa frammi fyrir. Mótmælin kviknuðu eftir að 87 ára gömul kona var borin út af heimili sínu til hálfrar aldar í Madríd í síðustu viku. | |