Frá og með deginum í dag er óleyfilegt að eiga eða geyma „ómannað flugfar“ í Beijing, höfuðborg Kína. Líka er bannað að flytja dróna eða íhluti í þá innan borgarmarkanna. Þeim íbúum sem áttu dróna fyrir var gert að farga þeim eða selja á vottuðum sölustöðum.Bannið nær bæði til þéttbýlis og dreifbýlis á stórhöfuðborgarsvæðinu en það spannar um 16.400 ferkílómetra. Það er svæði sem er á stærð við hálfa Belgíu.Í Beijing eru aðalstarfsstöðvar kínverskra stjórnvalda og höfuðstöðvar Kommúnistaflokksins. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu finna reglulega fyrir því að hert sé á öryggiskröfum. VARÐAR SEKT OG TÆKIÐ GERT UPPTÆKT Í maí bönnuðu stjórnvöld sölu dróna í Beijing en þeir sem áttu slík tæki fyrir máttu halda þeim ef þeir skráðu þau hjá hinu opinbera.Í júní jukust hins vegar áhyggjur af öryggi í