Ferðatakmarkanir Bandaríkjaforseta leggja stein í götu afrískra fegurðardrottninga. Fulltrúar alls fimm Afríkuríkja gætu misst af keppninni um Ungfrú alheim því þær fá ekki vegabréfsáritun.Keppnin í ár er haldin í Púertó Ríkó sem er hluti af Bandaríkjunum. Ungfrú Simbabve, Roseanna Hall, átti að fara þangað í byrjun vikunnar en greinir frá því á Instagram-síðu sinni að ekki hafi orðið af því vegna ferðatakmarkana sem Bandaríkin settu á landið hennar.„Ég er ekki ein. Ég veit að nokkrar af afrískum systrum mínum hafa staðið frammi fyrir sömu áskorunum,“ segir Hall. Flestir keppendur eru þegar komnir til Púertó Ríkó.Þeirra á meðal er íslenska söngkonan Sigríður Ósk Hrafnkelsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ózk.Keppnin er sú 75. í röðinni og verður haldin 24. nóvember. Fulltrúar Sambíu, Kongó og