Persónuverndarstefna

Síðast uppfært: 1. maí 2026

Blaðberi safnar einungis þeim upplýsingum sem nauðsynlegar eru til að veita þjónustuna. Engar auglýsingar eru birtar, engum gögnum er deilt með auglýsendum og engin þvert-á-vefsvæði rakning fer fram.

Ábyrgðaraðili

Björn Brynjúlfur Björnsson. bjorn@bladberi.is

Hvaða gögnum er safnað
  • Aðgangsupplýsingar: notandanafn, dulkóðað lykilorð (bcrypt) og símanúmer til staðfestingar á aðgangi.
  • Netfang: einungis ef notandi býr til API-lykil gegnum vefþjónustuna; netfangið er notað til að afhenda lykilinn.
  • Notendaefni: ummæli og atkvæði sem notandi skráir eru opinberlega sýnileg undir notandanafninu.
  • Tilkynningarmerki (push token): einkvæmt auðkenni tækisins, geymt í gegnum OneSignal, til þess eins að afhenda tilkynningar um svör við ummælum.
  • Notkunarmælingar: ópersónugreinanlegar tölur um smelli og útþenslu samantekta á einstaka fréttum, sem nýtast til að birta vinsælustu fréttir („Efst").
  • Vafrakökur: innskráningarkaka og stillingakaka (þema, flokkun, röðun). Engar auglýsingakökur eða þriðju-aðila rakningarkökur.
Þriðju aðilar

Eini þriðji aðilinn sem fær gögn um notendur er OneSignal, sem afhendir push-tilkynningar. OneSignal fær einungis tilkynningarmerki tækisins og innra notandaauðkenni Blaðbera.

Geymslutími

Aðgangur og innslegið efni eru geymd þangað til notandi eyðir aðgangi sínum. Notkunarmælingar eru geymdar í samanteknu formi til lengri tíma. Push-merki er eytt þegar notandi afskráir tækið eða eyðir aðgangi.

Réttindi þín

Þú hefur rétt til að nálgast, leiðrétta eða fá eytt þeim persónuupplýsingum sem þig varða. Hægt er að eyða aðgangi sínum sjálfur í stillingum, eða með því að senda póst á bjorn@bladberi.is.

Persónuvernd

Kvartanir vegna meðferðar persónuupplýsinga má beina til Persónuverndar.

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd