Vilja koma böndum á drápsvélmenni en stórveldin neita

Ríki heimsins ætla að freista þess að koma sér saman um bindandi reglur um sjálfvirk vopnakerfi, sem sumir vilja einfaldlega kalla drápsvélmenni (e. killer robots).Áhyggjur af aukinni notkun slíkra véla hafa aukist en þróun þeirra hefur fleygt fram undanfarið í tengslum við stríðsrekstur víða um heim. Herir reyna í auknum mæli að nýta sér gervigreind á vígvellinum en hún gerir þeim kleift að auðkenna skotmörk og ráðast á þau með mun skjótari hætti en áður var hægt.Rússar nota nú þegar fullkomlega sjálfvirka árásardróna og varnarmálaiðnaður Úkraínu rær að því öllum árum að koma sér upp sjálfvirkum „drónaskara“.Þá olli heimildarmyndin NAZA nokkru fjaðrafoki þegar hún afhjúpaði hvernig Ísraelsher beitir gervigreind til að drepa tugþúsundir óbreyttra borgara á Gaza. VELJA SKOTMÖRK ÁN MENNSKR
Vilja koma böndum á drápsvélmenni en stórveldin neita

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar