Einn ástsælasti glæpasagnahöfundur Norðmanna, Jørn Lier Horst, gerðist á dögunum uppvís að notkun gervigreindar við skrif sex glæpasagna. Norski miðillinn Aftenposten greindi frá því í síðustu viku en blaðið hafði látið greina notkun gervigreindar í norskum metsölubókum.Dagblaðið notaði greiningarforritið Skrivera sem leitar að einkennum gervigreindartexta og lét það skoða tíu vinsælustu bækur síðasta árs.Niðurstaða greiningarinnar leiddi í ljós að tvær bækur báru þess merki. Báðar voru eftir Horst. Önnur bókin, sem ber nafnið Den siste saken, eða Síðasta sakamálið, sýndi mikil merki gervigreindarnotkunar eða 73%. Bókin var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Riverton á síðasta ári.Aftenposten ákvað þá að láta forritið skoða eldri verk eftir Horst til að ganga úr skugga um að einkennin sem það