Tékkar mótmæla breytingum á ríkisútvarpi

Um 350 þúsund manns mótmæltu í Prag í dag fyrirætlunum stjórnvalda í Tékklandi um að setja ríkisútvarp landsins á fjárlög í stað afnotagjalda. Því fylgir um 15% niðurskurður á fjármagni.Mótmælendur telja þetta gera ráðherrum kleift að hafa áhrif á fréttaflutning eins og fordæmi séu fyrir, til dæmis í Slóvakíu og Serbíu. Yfirvöld segja ekkert slíkt standa til.Alþjóðleg samtök blaðamanna og starfsmenn ríkisútvarpsins hafa mótmælt þessum áætlunum. Skipuleggjendur segja mótmælin líklega hafa verið með þeim stærstu í sögu landsins.Fyrr í mánuðinum fóru starfsmenn tékkneska ríkisútvarpsins í verkfall.350 þúsund Tékkar mótmæltu fyrirætlunum stjórnvalda um breytingar á fjármögnun ríkisútvarpsins í dag. Mótmælendur telja að breytingarnar gætu gert ráðherrum kleift að hafa áhrif á fréttaflutning.
Tékkar mótmæla breytingum á ríkisútvarpi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar