Fastur í flugvél í Chicago í margar klukkustundir

Bandaríska flugmálastjórnin aflétti kyrrsetningu flugvéla í Bandaríkjunum á öðrum tímanum í nótt en öll flugumferð var stöðvuð í gærkvöldi vegna vandamála í fjarskiptakerfi flugumferðastjórnarinar. Að minnsta kosti 10.000 flugferðum var seinkað og 5000 ferðum aflýst.Frjálsíþróttamaðurinn Kolbeinn Höður Gunnarsson var á leið til Íslands frá Houston í Texas þar sem hann var í sex vikna æfingabúðum. Hann millilenti í Chicago þar sem hann hefur setið fastur í flugvél United í margar klukkustundir.„Við erum bara búin að vera parked hérna á flugvellinum. Það eru engin hlið laus því það eru náttúrulega svo margar flugvélar sem fengu að lenda en svo fær enginn að fara neitt,“ sagði Kolbeinn í samtali við fréttastofu skömmu eftir miðnættið. VAR LÍKA Á FLUGI ÞEGAR FRÉTTIR BÁRUST AF COVID-LOKUNUM
Fastur í flugvél í Chicago í margar klukkustundir

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar