Franski júdómeistarinn og forsetaframbjóðandinn Teddy Riner virðist ekki kæra sig um stuðning forsetans Emmanuels Macron. Hvatningarorð hans væru eins og eiturbikar. Forsetinn sagði á mánudag að framboð hins vinsæla Riners gæti aðeins orðið landinu til hagsbóta.Riner, sem er óreyndur á stjórnmálasviðinu, kynnti framboð sitt á mánudag með þeim orðum að hann vilji sameina landsmenn. Hann gæfi kost á sér fyrir þá kjósendur sem ekki vildu velja milli tveggja pólitískra öfga til hægri og vinstri.Í dag kvaðst hann alls ekki vera sendimaður forsetans, hann væri hvorki hægri né vinstrimaður þótt fjöldi fólks hefði sagt hann vilja feta í fótspor Macrons, og kom þá með samlíkinguna um eiturbikarinn. Vinsældir forsetans hafa aldrei verið minni frá því hann tók við embætti árið 2017, ekki síst vegna u