Hundruð milljóna bandaríkjadala sem ráðstafa átti til að takast á við ebólufaraldur í Kongó hafa ekki skilað sér á rétta staði. Frá þessu greinir í skýrslu frá samtökunum Læknar án landamæra.Framlínustarfsfólk fær ekki greidd laun, það skortir viðeigandi þjálfun og glímir líka við skort á nauðsynlegum búnaði og birgðum. Þá eru dæmi þess að ekki sé nægt eldsneyti til fyrir sjúkrabíla.Meira en 5.400 manns hafa látist og 11.000 smitast í Kongó síðan faraldri var lýst yfir í maí. Það gerir hann að mannskæðasta ebólufaraldrinum til þessa.Læknar án landamæra hvetja stjórnvöld í Kongó og stofnanir Sameinuðu þjóðanna til að efla eftirlit og ábyrgð til að tryggja að fjármunum sé beint þangað sem þörfin er mest.