Hátt í 1.500 flóttamönnum bjargað undan ströndum Kanaríeyja

Björgunarsveitir og strandgæsla björguðu í gær 1.488 flóttamönnum á fjórtán bátum undan ströndum Kanaríeyja. Spænski miðillinn El País segir að ekki hafi jafnmargt flóttafólk komið til eyjanna á einum degi undanfarin 32 ár.Fólkið er sagt vera frá Vestur-Afríkulöndunum Senegal, Gambíu og Máritaníu. Ríkisstjórn Spánar og héraðsyfirvöld á Kanaríeyjum komust að samkomulagi í síðustu viku um fjárhagslegan stuðning við brottflutning flóttafólks frá eyjunum til meginlandsins.Reuters greinir frá því að fimm og hálfu prósenti færri flóttamenn hafi komið til Kanaríeyja það sem af er ári samanborið við sama tíma í fyrra. Hins vegar hafi óvænt fjölgun í október aukið þrýsting á björgunarsveitir eyjanna, ekki síst þeirra minnstu og fámennustu.Tólf bátanna fjórtán komu að landi á El Hierro, sem er minns
Hátt í 1.500 flóttamönnum bjargað undan ströndum Kanaríeyja

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar