Íran réðst að ratsjárkerfi Bandaríkjahers

Íranski byltingarvörðurinn gerði drónaárás á herstöð Bandaríkjahers í Persaflóaríkinu Barein.Bandaríkin eru bæði með flotastöð og herflugvöll í Barein.EPA / CATI CLADERASírenur ómuðu og bareinsk yfirvöld birtu viðvaranir á samfélagsmiðlum þar sem fólki var ráðlagt að leita skjóls, án þess þó að tilgreina í hverju ógnin fælist.Íranska ríkisútvarpið staðfesti árásina fyrir skemmstu og sagði byltingarvörðinn hafa beitt sex drónum til að ráðast að bandarísku ratsjárkerfi á Al-Riffa þyrlustöðinni.Barein hýsir bæði stóra flotastöð Bandaríkjahers og herflugvöll og það gerir landið að skotmarki í áframhaldandi átökum Írans og Bandaríkjanna.
Íran réðst að ratsjárkerfi Bandaríkjahers

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar