Rússneskir erindrekar sem ræddu við erindreka frá Úkraínu og Bandaríkjunum í Sameinuðu furstadæmunum í vikunni, kröfðust þess að ríkjum Austur-Evrópu yrði vísað úr Atlantshafsbandalaginu. Þeir sögðu það bestu leiðina til að tryggja frið í Evrópu til langs tíma og vísuðu sérstaklega til Varsjárbandalagsins og tíma kalda stríðsins varðandi hvernig Evrópa gæti litið út í framtíðinni.