Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gerðist brotlegur við lög um jafna meðferð á vinnumarkaði þegar hann skipaði í embætti aðstoðaryfirlögregluþjóns á rannsóknarsviði árið 2023. Þetta segir í úrskurði kærunefndar jafnréttismála.Að mati nefndarinnar varð ekki séð að hlutlæg og málefnaleg sjónarmið hafi legið til grundvallar ákvörðun lögreglustjóra að boða einn umsækjanda ekki í seinna viðtal hjá valnefndog útiloka hann frá umsóknarferlinu.„Samkvæmt framansögðu er það því niðurstaða kærunefndar jafnréttismála að kærði hafi mismunað kæranda á grundvelli aldurs,“ segir í úrskurði. EKKI BOÐIÐ Í SEINNA VIÐTAL Umsækjandi kærði það til nefndarinnar að manneskja sem var tæplega tveimur áratugum yngri en hann hefði verið ráðin og taldi að sér hefði verið mismunað á grundvelli aldurs.Fimm sóttu