Trump gert að hætta við áform um golfvöll fyrir útvalda

Alríkisdómarinn Ana Reyes, sem skipuð var í forsetatíð Joes Biden, hefur sett lögbann á hugmyndir Donalds Trump Bandaríkjaforseta um að breyta almenningsgolfvelli í Washington í golfvöll ætlaðan útvöldum gestum. Golfvöllurinn hefur verið opinn almenningi og lítið rukkað fyrir aðgang.Trump boðaði fyrirætlanir sínar í júní og sagði að á laggirnar yrði settur einn besti golfvöllur veraldar í Austur-Potomac-garðinum. Hann kvaðst dreyma um að á vellinum yrði unnt að halda helstu golfmótin eins og US Open, Ryder-bikarinn og PGA-mótaröðina.Trump skrifaði færslu á Truth Social í október þar sem hann boðaði upphaf framkvæmda í dag, 15. nóvember, og þá yrði garðinum lokað. Samstundis hófust verkamenn handa við að fella trjágróður. Þegar hafa 430 tré verið fjarlægð.Trump boðaði upphaflega að nýi völl
Trump gert að hætta við áform um golfvöll fyrir útvalda

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar