Kaja Kallas, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, krefst þess að Ísraelsstjórn opni umsvifalaust landamærin að Gazaströndinni og hleypi björgunarsveitum að. Tjaldbúðir sem hýsa tugþúsundir Palestínumanna eru umflotnar vatni eftir úrhellisrigningu síðustu daga.Þýsku hjálparsamtökin Missio Aachen segja að um það bil milljón manns séu á vergangi á flóðasvæðunum.Vetrarkuldar bæta svo gráu ofan á svart og ógna lífi og heilsu fólksins á Gaza. Níu mánaða barn lést nýverið af völdum ofkælingar að sögn heilbrigðisráðuneytis Hamas á Gaza sem segir það fyrsta andlátið af völdum kulda þennan veturinn.