Í frétt blaðsins BILD er greint frá umdeildri friðartillögu úr óformlegum viðræðum, sem sögð er komin úr nánasta pólitíska umhverfi Pútíns. Því er ekki fullljóst hvort þetta eru formlegar kröfur Rússa eða hugmyndir þeirra sem standa nærri Pútín. Á móti kemur að Rússar hafa nefnt flest atriðin í einhverju samhengi áður. Í desember 2021 lögðu þeir til að mynda fram drög að öryggissamningum við Bandaríkin og NATO. Þar var meðal annars krafist takmarkana á stækkun Atlantshafsbandalagsins og hernaðarviðveru í Evrópu.Bild segir kröfurnar þessar: * Rússland heldur öllum hernumdum svæðum og fær að auki öll héruðin Donetsk og Luhansk, þótt Úkraína ráði enn hluta þessara héraða. Rússum hefur til þessa ekki tekist að hertaka þessi svæði. * Hafnirnar í Odesa og Mykolajiv verða teknar úr notkun sem f