Brýnt að hjálpargögn komist til Gaza

Evrópusambandið krefst þess að Ísraelsstjórn veiti hjálparsamtökum óhindraðan aðgang að Gaza-ströndinni vegna mikilla flóða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá ESB. Opna verði allar landamærastöðvar til að hægt sé að koma hjálpargögnum til nauðstaddra.Tugþúsundir heimila á Gaza hafa orðið fyrir áhrifum mikils úrhellis og eru þúsundir neyðarskýla rústir einar, að sögn Rauða krossins – sem segir að sums staðar hafi yfirborð vatns náð einum og hálfum metra.ESB segir brýnt að Ísrael geri Sameinuðu þjóðunum og stofnunum þeirra að sinna hjálparstarfi og virði skyldur sínar samkvæmt alþjóðalögum.EPA / MOHAMMED SABER
Brýnt að hjálpargögn komist til Gaza

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar