Neteftirlitsstofnun Ítalíu hefur sektað samfélagsmiðlafyrirtækið Meta um 805 milljónir evra eða jafnvirði 110 milljarða króna.Fyrirtækið er sakað um að hafa notað eiginleika í Facebook-appinu fyrir Android-síma, sem stingur upp á deilingu myndskeiða, til að ganga að slíku efni án þess að biðja leyfis eða tilkynna um það.Meta rekur miðlana Facebook, Instagram og WhatsApp og hefur ekki enn tjáð sig um niðurstöðuna samkvæmt frétt Reuters. Fyrirtækið hefur tvo mánuði til að óvirkja eiginleikann eða æskja leyfis frá notendum.Sektin nemur um 0,47 af hundraði tekna Meta á heimsvísu. Rannsóknin sem hófst á síðasta ári náði ekki yfir þann möguleika að efnið yrði notað til að þjálfa gervigreindarlíkön, samkvæmt upplýsingum ítalskra yfirvalda.Meta þvertekur fyrir að sú hafi verið ætlunin en segist ás