Meira en hundrað farandmenn lögðu af stað fótgangandi frá Mið-Ameríkulandinu Hondúras í átt að Bandaríkjunum í gær þrátt fyrir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi varað þá við og sagt þeim að halda sig fjarri.Farandfólkið, sumt þeirra með börn í fanginu, fór frá rútustöð í borginni San Pedro Sula í norðurhluta landsins skömmu fyrir klukkan fjögur að staðartíma. Það var klukkan níu í gærkvöldi að íslenskum tíma.Fyrsti áfanginn er landamærastöðin Corinto sem er á landamærum Hondúras og Guatemala.Trump hefur hótað því að tvöfalda tolla á Mexíkó ef farandfólkið er ekki stöðvað áður en það kemst yfir landamærin til Bandaríkjanna.Claudia Sheinbaum forseti Mexíkó segir að 24 hópar farandfólks hafi verið stöðvaðir frá því að Trump komst til valda árið 2024. Engir hópar séu nú á leið inn til Ban