Felldu hátt settan Hamas-liða í loftárás

Ísraelsher greindi frá því rétt í þessu að þeim hefði tekist að fella hátt settan liðsmann Hamas, Samir Abu Younis. Þetta kom fram í sameiginlegri yfirlýsingu hersins og öryggisþjónustunnar Shin Bet.Abu Younis var yfirmaður í Al-Qassam-sveitunum, hernaðararmi Hamas-samtakanna, og stýrði Rafah-sveitinni. Hann var 53 ára gamall.AP-fréttaveitan segist hafa heimildir fyrir því að Abu Younis hafi fallið í loftárás í AL-Mawasi, vestur af Khan-Younis á Gaza. Þá hafa almannavarnir á Gaza staðfest við fréttaveituna að þau hafi tekið á móti líki hans.Tveir aðrir særðust í árásinni en Abu Younis er sagður hafa verið aðalskotmarkið. ÁRÁSIR ÞRÁTT FYRIR VOPNAHLÉ Ísrael og Hamas hafa ítrekað sakað hvort annað um að brjóta vopnahlé sem tók gildi í október 2025. Á fimmtudag voru sex drepnir og á þriðja
Felldu hátt settan Hamas-liða í loftárás

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar