Gríðarstórir grjóthnullungar sem umhverfisverndarsamtökin Greenpeace komu fyrir á hafsbotni í Norðursjó í vikunni lentu á uppbyggingarsvæði fyrir einn stærsta vindmyllugarð Bretlands til þessa. The Guardian greinir frá.Einn hnullungurinn var skorinn út í mynd náttúrufræðingsins Davids Attenborough, en grjótinu var varpað á sama tíma og heimildarmynd hans, Bláa plánetan III, var frumsýnd. Þá voru nöfn fleiri þekktra umhverfisverndarsinna á borð við Simon Pegg og Benedict Cumberbatch hoggin í nokkra hnullunga.Grjótið sem varpað var fyrir borð er allt að tvö tonn að þyngd. Því er ætlað að hindra botnvörpuveiðar á svæðinu sem Greenpeace segir að ógni hnísum úti fyrir ströndum Norfolk-sýslu.Botnvörpuveiði á svæðinu mun þó eðli málsins samkvæmt færast annað þegar vindmyllugarðurinn er risinn en