Ali al-Zaidi forsætisráðherra Íraks hefur rekið níu embættismenn vegna gruns um að þeir hafi stundað olíusmygl. Rannsókn á málinu var hafin í síðustu viku en olíunni var smyglað á svæði sem stjórnað er af vígasveitinni Kataib Hezbollah. Hún nýtur stuðnings íranskra stjórnvalda.Ríkisfréttamiðill Íraks, INA, greindi frá því á miðvikudag að gervihnattamyndir hefðu náðst sem sýndu vopnaða hópa smygla hráolíu og öðru efni sem unnið er úr olíu af svæðinu, Jurf al-Sakher.Al-Zaidi komst til valda með aðstoð Bandaríkjanna og hann er undir sífellt meiri þrýstingi frá þarlendum stjórnvöldum um að taka á vopnuðum hópum í landinu sem studdir eru af Íran.Hann hefur heitið því að tryggja að vígasveitir skili vopnum sínum til stjórnvalda og sumar þeirra hafa orðið við því. Stærri og valdameiri sveitir, þa