SpaceX tókst að grípa hluta Starship-eldflaugarinnar á leið til jarðar. Vélarmar á skotturni SpaceX í Texas gripu þennan efsta hluta eldflaugarinnar sem er enn í heilu lagi og óskemmdur.SpaceX hefur reynt þetta áður en fyrsta tilraunin mistókst. Hætta þurfti við að grípa eldflaugarhlutann og honum var beint út á haf þar sem kviknaði í honum.