Rússneski listamaðurinn Alexey Sergienko kynnti nýja málverkið sitt, Shenzhen, 26, í listagalleríi í Sankti Pétursborg í Rússlandi 12. nóvember 2026. Verkið, sem sýnir þá Donald J. Trump Bandaríkjaforseta, Vladimír Pútín Rússlandsforseta og Xi Jinping Kínaforseta, tileinkar listamaðurinn hugmyndinni um alþjóðlega samræðu, ábyrgð á framtíðinni og leit að friði.EPA / ANATOLY MALTSEVDonald Trump, Vladimír Pútín og Xi Jinping, forsetar Bandaríkjanna, Rússlands og Kína, ætla að ræða saman 19. nóvember á ráðstefnu Efnahagssamvinnuráðs Asíu- og Kyrrahafsríkjanna sem haldin verður í kínversku borginni Shenzhen.Rússneska fréttaveitan RIA hefur þetta eftir talsmanni stjórnvalda í Kreml. Olivia Wales, talskona Hvíta hússins, segir Trump forseta ætla að leggja megináherslu á fækkun kjarnorkuvopna í he