Geislasverð Darth Vader, eða Svarthöfða eins og hann er nefndur á íslensku, var selt á uppboði á fimmtudaginn fyrir 4,9 milljónir bandaríkjadala. Það er jafnvirði rúmra 600 milljóna íslenskra króna.Samkvæmt uppboðshúsinu, Heritage Auctions í Dallas, er þetta metverð fyrir safngrip úr Stjörnustríðskvikmyndunum. „ÉG ER FAÐIR ÞINN“ Geislasverðið var meðal annars notað í einu frægasta atriði allrar seríunnar, þegar Svarthöfði beitir því til að höggva höndina af Luke Skywalker, eða Loga Geimgengli eins og við kusum að kalla hann á okkar ástkæra alhýra máli.Þegar Logi sakar Svarthöfða um að hafa myrt föður sinn svarar Svarthöfði með hinum ódauðlegu orðum: „Nei. Ég er faðir þinn.“ Það var í kvikmyndinni The Empire Strikes Back sem kom út árið 1980.Það var rödd leikarans James Earl Jones heitin