Suðurkóreskur maður hefur viðurkennt að hafa svindlað á hæfniprófi fyrir skattaendurskoðendur með aðstoð snjallgleraugna og gervigreindar.Maðurinn fékk 397,5 stig af 400 í prófinu, sem þýðir að hann svaraði aðeins einni spurningu af 160 rangt.Þetta þótti grunsamlegt og því var hrundið af stað lögreglurannsókn sem endaði með því að maðurinn játaði á sig svindlið. Hann segist sjá innilega eftir gjörðum sínum. Hann hafi átt í fjárhagserfiðleikum eftir að hann hætti í vinnu og hóf eigin rekstur.„Mig langaði að græða peninga og mér þótti hræðilegt að valda foreldrum mínum vonbrigðum eftir að hafa sagt upp góðu starfi,“ sagði maðurinn enn fremur í játningu sinni. TÓK MYND OG SENDI TIL GERVIGREINDAR Maðurinn útskýrði í játningu sinni að hann hafi notað örmyndavél til að taka myndir af prófspur