Áhöfn á finnsku herskipi á Finnlandsflóa varð vör við sprengingu á miðvikudagsmorgun og við eftirgrennslan kom í ljós að reykur barst frá rússnesku herskipi. Skipið var ásamt fleirum undan eyjunni Gogland, sem er rússnesk en einungis fjörutíu kílómetra suður af Finnlandi og 55 kílómetra norður af Eistlandi.Umferð rússneskra herskipa hefur, samkvæmt eistneskum fjölmiðlum, aukist til muna á þessum slóðum undanfarið.Nú er talið víst að sprengingin um borð í herskipinu hafi verið drónaárás Úkraínumanna. Talsmenn þarlendra yfirvalda segjast hafa gert árás á rússnesk herskip á sama tíma. Þetta er fyrsta árásin á þessum slóðum sem rakin er til Úkraínuhers og þykir sæta tíðindum vegna þess að dróninn hefur flogið um tvö þúsund kílómetra áður en hann kom að skotmarki sínu og gat greint rétta skipið