Mexíkóski blaðamaðurinn Eduardo Flores fannst látinn á laugardaginn í orlofsbyggð í Acapulco.Ekki hefur fengist staðfest hvort dauði Flores hafi tengst starfi hans sem blaðamaður með beinum hætti en aðalumfjöllunarefni hans sneru að öryggismálum, mannréttindum og mannshvörfum. Lögregluyfirvöld eru að rannsaka málið.Yfirmaður Flores á fjölmiðlinum Enfoque Informativo segir að morðið sé ekki aðeins persónulegur harmleikur, heldur sé það bein árás á tjáningarfrelsið og rétt samfélagsins til að eiga aðgang að upplýsingum.Samtökin Blaðamenn án landamæra greina frá því að Flores sé tíundi blaðamaðurinn sem er myrtur í Mexíkó það sem af er ári. Landið er talið eitt það hættulegasta í heimi fyrir fréttafólk.