Vinna við að skipta út koparstreng fyrir ljósleiðara varð til þess að flugumferðarkerfið í Bandaríkjunum hrundi í gær. Þetta segir Sean Duffy, samgönguráðherra landsins. Hann segir uppfærsluna hafa valdið því að beinir ofhlóð flugumferðarstjórnarkerfið og olli samskiptatruflunum við flugvélar.Stjórnvöld eru að reyna að komast að því hvort vandann megi rekja til „vanhæfni“ fyrirtækisins sem sá um uppfærsluna eða til gallaðs búnaðar, að sögn Duffy.„Við ætlum að draga fólk til ábyrgðar,“ sagði hann á blaðamannafundi.Öll flugumferð í Bandaríkjunum var stöðvuð í gærkvöld vegna vandamála í fjarskiptakerfi flugumferðarstjórnar. Að minnsta kosti 10.000 flugferðum var seinkað og 5.000 ferðum aflýst. Bandaríska flugmálastjórnin aflétti kyrrsetningunni á öðrum tímanum í nótt.Kyrrsetningin var sú leng