Árásirnar gera íbúum höfuðborgarinnar Kyiv lífið sífellt erfiðara og sumir hafa ákveðið að flýja land yfir vetrartímann.Árásir á orkumannvirki hafa mest áhrif, ekki bara vegna myrkurs heldur líka kulda. Þeir sem reyna að halda orkumannvirkjunum gangandi eyða helmingi tímans ýmist í að hreinsa til eftir árásir Rússa eða dúsa í neyðarskýlum þegar hætta er á árásum.Það reynir á þegar vinna starfsmannanna er endalaust sprengd, svo ekki sé talað um stöðuga hættu af árásunum sjálfum.Starfsmennirnir segjast þó ekki óttast neitt. Stjórnvöld í Úkraínu segja ljóst að tilgangur Rússa sé að gera Úkraínu verri til búsetu. Og fólk kvíðir vetrinum, einkum ef það dregur úr aðstoð annarra ríkja.