Skemmtiferðaskip sökk eftir ásiglingu olíuflutningaskips

Betur fór en á horfðist þegar olíuflutningaskip rakst á farþegaskipið American Heritage sem var við landfestar á Mississippi-fljóti í New Orleans í gær. Við áreksturinn hvolfdi skemmtiferðaskipinu og það sökk.Farþegar reyndu í flýti að komast frá borði og tugir þeirra köstuðust út í vatnið. Starfsfólk hafnarinnar, slökkviliðsmenn og vegfarendur brugðust skjótt við til að bjarga fólkinu úr ánni.Helena Moreno, borgarstjóri New Orleans, greindi frá því á blaðamannafundi að tekist hefði að hafa uppi á öllum þeim sem voru um borð í skipinu og sagði það kraftaverki líkast að allir hefðu komist lífs af.Hátt í 190 farþegar voru um borð í skipinu en 32 þeirra voru fluttir á sjúkrahús. Enginn þeirra var þó alvarlega slasaður.
Skemmtiferðaskip sökk eftir ásiglingu olíuflutningaskips

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar