Notkunarskilmálar

Síðast uppfært: 23. október 2026

Þessir skilmálar gilda um vefinn bladberi.is, smáforrit Blaðbera, vefþjónustuna og MCP þjóninn. Rekstraraðili er Björn Brynjúlfur Björnsson (bjorn@bladberi.is). Með því að nota þjónustuna samþykkir þú skilmálana.

Þjónustan

Blaðberi safnar saman fyrirsögnum og samantektum úr fréttaveitum íslenskra miðla og vísar á fréttirnar sjálfar hjá miðlunum. Fréttaefnið tilheyrir viðkomandi miðli. Þjónustan er endurgjaldslaus og veitt eins og hún er, án ábyrgðar á því að hún sé ætíð aðgengileg, villulaus eða að efni hennar sé rétt eða tæmandi.

Vefþjónusta og MCP
  • Aðgangur krefst innskráningar og er bundinn við aðgang þinn; þú berð ábyrgð á notkun lykla og tengdra forrita.
  • Virða skal hraðatakmarkanir og ekki reyna að sniðganga þær, t.d. með mörgum aðgöngum.
  • Ekki má endurbirta fréttaefni í heild eða bjóða það áfram sem eigin fréttaþjónustu; vísa skal á upprunalega frétt.
  • Óheimilt er að nota þjónustuna til ólögmætrar starfsemi eða til að valda henni álagi eða skaða.
  • Við getum breytt þjónustunni, takmarkað hana eða lokað á aðgang sem brýtur gegn skilmálunum.
Ummæli

Um ummæli gilda reglur ummælakerfis. Þú berð ábyrgð á efni sem þú birtir.

Persónuvernd

Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefnan.

Breytingar og lög

Skilmálunum kann að verða breytt og tekur ný útgáfa gildi við birtingu hér. Um skilmálana gilda íslensk lög.

Summary in English

These terms cover bladberi.is, the Blaðberi apps, the API and the MCP server, operated by Björn Brynjúlfur Björnsson (bjorn@bladberi.is). Blaðberi aggregates headlines and summaries from Icelandic news outlets' feeds and links to the original articles; the content belongs to the outlets. The service is free and provided as is, without warranty of availability, accuracy or completeness.

API and MCP access requires sign-in and is tied to your account. Respect the rate limits, don't republish articles in full or resell the content as your own news service, link to the original article, and don't use the service unlawfully or to overload it. We may change or limit the service and suspend access that breaks these terms. Comments follow the community rules; personal data is handled under the privacy policy. Icelandic law applies.

Um Blaðbera·Vefþjónusta·MCP·Persónuvernd·Skilmálar