Bandaríkin lögðu til að Úkraína gæfi eftir land til Rússa í skiptum fyrir inngöngu í NATO. Þetta sagði Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu í samtali við fjölmiðla. Þá séu þær kröfur sem Rússar geri um breytt landslag í öryggismálum Evrópu hættulegar.Fjölmiðlar hafa greint frá því að í friðarviðræðunum í Úkraínu hafi Rússar sett ákveðin skilyrði í öryggismálum Evrópu. Meðal annars eigi Rússland að halda sínum hernumdu svæðum og fá að auki Donetsk og Luhansk sem þeim hefur ekki tekist að hernema að fullu. Þá afsali Úkraína sér möguleikanum á að ganga í NATO og Finnland verði að segja sig úr NATO. Friedrich Merz kanslari Þýskalands hefur þegar sagt að þessar tillögur séu ekki til umræðu.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu tók undir það í samtali við fréttamenn í gær, sem var birt í morgun. Þar