Jósk kirkja föl fyrir eina krónu

Kirkja í Danmörku gæti verið föl fyrir eina krónu. Það er að minnsta kosti það sem Morten Graversen, formaður barna- og fræðslunefndar sveitarfélagsins Struer á Vestur-Jótlandi segir í samtali við danska ríkisútvarpið.Sveitarfélagið fékk kirkjuna að gjöf árið 2025 þegar frísöfnuðurinn í Voldhøj var lagður niður en sveitarfélagið segist ekki hafa not fyrir húsnæðið.Aðspurður hvað það kosti að kaupa kirkjuna segir Graversen að hún fáist mjög ódýrt. Beðinn um að gera betur grein fyrir verðinu segir hann: „Ég myndi næstum segja eina krónu. Þannig að þetta er nokkuð ódýrt.“Til að koma í veg fyrir allan misskilning er vert að geta þess að hér er talað um eina danska krónu. Umreiknað í íslenskan gjaldmiðil fengist kirkjan því strangt til tekið á 18 krónur. MYNDI KOSTA 8 MILLJÓNIR ÍSLENSKAR AÐ R
Jósk kirkja föl fyrir eina krónu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar