Tveir karlmenn voru teknir af lífi í Sádí Arabíu í dag. Þeir voru sakfelldir fyrir margvísleg brot á borð við hryðjuverk á vegum erlendrar hreyfingar og skotárás á öryggissveitir. Tvímenningarnir voru líflátnir skömmu eftir að hæstiréttur hafnaði áfrýjun þeirra.Mannréttindasamtökin Reprieve, sem hafa aðsetur í Lundúnum, segja við AFP að annar mannanna hafa verið handtekinn í desember 2020 fyrir skipulagningu og þátttöku í mótmælum þegar hann var fjórtán ára.Samtökin segja hann hafa verið pyntaðan til að játa á sig upplognar sakir og að sakfelling sé hluti hefndaraðgerða krónprinsins Mohammed bin Salman gegn fjölskyldu mannsins.Reprieve segir öryggissveitir hafa banað eldri bróður hans árið 2011 og tveir til viðbótar dæmdir til langrar fangavistar. Þau segja að í ríki krónprinsins sé dauði