| 16:48 | Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni 90 Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Samkvæmt heimildum fréttastofu voru tökur í verslun Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tökulið hefur einnig verið í miðborg Reykjavíkur.Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og verið vel tekið af gagnrýnendum. Þeir eru úr smiðju Tinu Fey, sem fer einnig með eitt aðalhlutverkið.Þættirnir fjalla um vinahjón sem fara reglulega saman í ferðalög og hvernig líf þeirra tekur breytingum í gegnum þau.Auk Fay fara Domingo Colman, Steve Carrell, Will Forte, Erika Henningsen og Marco Calvani með aðalhlutverk í þáttunum.Colman Domingo, einn aðalleikari þáttanna, heimsótti verslunina Kirsuberjatréð í miðborg Reykjavíkur í vikunni.Domingo hefur verið einn | |
| 16:26 | Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook 91 Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður og fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, segist ekki hafa talið sig eiga neitt val um afsögn þar sem hann hafði ekki heilsu til þess að berjast fyrir embætti sínu eftir aðgerð. Hann eigi í dag engin samskipti við Ingu Sæland, sem hafi eytt honum af vinalista sínum á Facebook. | |
| 15:55 | Ráðherra veitir ekki viðtal: „Ennþá það slappur“ 81 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, getur ekki veitt viðtöl í dag vegna veikinda, að sögn aðstoðarmanns hans, en hann var fjarverandi á ríkisstjórnarfundi í morgun. | |
| 15:22 | Óttast að gjaldið hafi þveröfug áhrif 53 Forstjóri Arctic Adventures, óttast að fyrirhugað náttúru- og innviðagjald geti haft neikvæð áhrif á íslenska ferðaþjónustu og jafnvel orðið til þess að tekjur af ferðamönnum dragist saman í stað þess að aukast. | |
| 14:39 | Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri 52 Fimm karlmenn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir í garð manns í ágúst árið 2023. Þeim er meðal annars gefið að sök að hafa troðið járnröri inn í endaþarm mannsins og svo stungið því í munn hans. Einn þeirra er ákærður fyrir að hafa tekið athæfið upp á myndskeið og deilt því í spjallhópinn „Fótbolti á Boys“ á samfélagsmiðlinum Snapchat. | |
| 14:02 | 39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi 59 Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Retail hefur höfuðstöðvar á Íslandi en starfsstöðvar í Bandaríkjunum, Portúgal, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Malasíu.Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að í skipulagsbreytingunum hafi stöðugildum verið fækkað um 39 sem jafngildir 10% af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins. Eftir breytingarnar eru starfsmenn fyrirtækisins 249, þar af 122 á Íslandi.Endurskipulagninguna megi að hluta rekja til verulegs samdráttar í opinberum stuðningi við rannsóknir og þróun hugbúnaðar á Íslandi.„LS Retail hefur um árabil notið rannsóknar- og þróunarstyrkja sem veittir eru í gegnum Rannís. Sá stuðningur hefur nú verið skertur verulega með afturvirkum | |
| 13:44 | Hafði ekkert með árásina að gera 57 Zoltán Belányi, sundþjálfara hjá KR, sárnar að hafa ítrekað verið tengdur við líkamsárás í síðustu viku. Hann er ekki viðriðinn málið og segir að tengingin sé skaðleg fyrir mannorð sitt og orðspor. | |
| 13:33 | Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“ 58 „Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir um sögulegan dóm sem féll í Hæstarétti Íslands á miðvikudaginn þar sem henni voru dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019.Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læknisfræði og hafði unnið sem læknir. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þessar tekjutengdu greiðslur sem byggðu á vinnu hennar í Danmörku heldur einungis lágmarksgreiðslur. Greiðslurnar sem hún fékk byggðu á því að hún hefði verið tekjulaus og var þetta vegna þess | |
| 13:13 | Freyr látinn fjúka frá Eflingu 71 Frey Rögnvaldssyni, upplýsingafulltrúa Eflingar, var sagt upp stöfum í morgun. | |
| 12:51 | Krefjast breytinga á „áralöngum samskiptavanda“ 53 Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hefur samþykkt ályktun Almars Guðmundssonar, bæjarstjóra í Garðabæ og formanns sambandsins, um að sveitarfélög sýni ábyrgð gagnvart stöðu efnahagsmála og taki virkan þátt í að bæta stöðuna. | |
| 12:38 | Freyr látinn fara frá Eflingu 67 Freyr Rögnvaldsson var upplýsingafulltrúi Eflingar var látinn fjúka á stuttum fundi í morgun. Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar segir að uppsögn hans hafi ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera. | |
| 12:16 | „Þvílíkt kjaftæði“ – vill jafna kjörin í hina áttina 59 Vilhjálmur Birgisson sparar ekki stóru orðin þegar rætt er um að jafna laun milli opinbera og almenna vinnumarkaðarins. „Þvílíkt kjaftæði,“ segir hann og telur að jöfnunin þurfi að ganga „akkúrat í hina áttina“. Opinberir starfsmenn njóti betri kjara, meiri réttinda og meira atvinnuöryggis. | |
| 11:54 | Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal 100 Guðmundur Ingi Kristinsson segir Ingu Sæland hafa vitnað í ráðherrasamtal sem um gildi trúnaður í ræðustól Alþingis í gær. Honum segist létt eftir að hafa birt skilaboð frá fyrrverandi aðstoðarkonu. Sannleikurinn sé staðreynd ekki upplifun. | |
| 11:46 | Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis 51 Guðmundur Ingi Kristinsson þingmaður og fyrrum ráðherra segir Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis í gær. Honum er þó létt að sannleikur málsins sé loks kominn fram. | |
| 10:52 | Læsti 130 milljóna vinningsmiða inni í skáp 63 Það var kona á níræðisaldri sem vann tæpar 130 milljónir í Lottóinu um síðustu helgi. | |
| 10:17 | Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund 57 Ráðherrar munu ekki veita viðtöl að loknum ríkisstjórnarfundi í dag, líkt og venjan er, þar sem þeir þurfa að þjóta á aðra fundi. Fyrrverandi ráðherra ríkisstjórnarinnar hefur sakað ráðherra um lygar í tengslum við afsögn hans. | |
| 09:19 | Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15 77 Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra. Það hlutfall hafði þá ekki farið undir 70% síðan 2002 og ekki verið lægra síðan 2001 þegar skuldir fjölskyldnanna voru 69,3% af landsframleiðslu.Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar þar sem skuldir og eignir eru metnar.Meðalfjölskyldan átti 60,4 milljónir króna í fyrra þegar verðmæti fasteigna, ökutækja, innstæðna í bönkum og verðbréfa voru lögð saman. Meðalfjölskyldan skuldar 14,7 milljónir.Elsta fólkið á mestar eignir að meðaltali, 111 milljónir, en eignir yngsta aldurshópsins jukust mest. | |
| 08:45 | Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá 67 Birgir Guðmundsson, prófessor emeritus við Háskólann á Akureyri, segir umræðu í kringum afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar óheppilega fyrir Ingu Sæland, Flokk fólksins og ríkisstjórnina í heild. Kjarni málsins sé að Inga Sæland hafi ekki sagt alveg satt og rétt frá og það geti rýrt traust. Rætt var við Birgi í Bítinu á Bylgjunni um málið. | |
| 07:00 | María Sigurðardóttir er látin 94 María Sigurðardóttir, eða Mæja eins og hún var alltaf kölluð, er látin 69 ára að aldri. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi þann 11. ágúst eftir baráttu við krabbamein. | |
| 00:42 | Fulltrúi Íslands yfirgaf ekki salinn með hinum 81 Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. |
| 23:51 | Meira um krabbamein hjá yngra fólki sem eigi að borða rautt kjöt mest einu sinni í viku 74 Nýgengi krabbameina meðal fullorðinna undir fimmtugu fer vaxandi á Norðurlöndunum. Hefur tíðni tólf krabbameinstegunda aukist meira meðal fólks á aldrinum 20 til 49 ára en þeirra á aldrinum 50 til 84 ára. | |
| 22:29 | Ártúnshöfðinn breytir um svip 54 Ártúnshöfðinn hefur heldur betur breytt um svip eftir að braggaröðin við Þórðarhöfða var rifin fyrr á þessu ári. | |
| 21:02 | „Það er skilgreiningin á því að pissa í skóinn sinn“ 64 Formaður VR telur þær aðgerðir sem ríkisstjórnin boðar í þeim tilgangi að ná hallaleysi verðbólguhvetjandi og segir það hina raunverulegu skilgreiningu á að pissa í skóinn sinn. Hún segir meiri líkur en minni á að samningum verði sagt upp fyrir þann 8. október. | |
| 19:58 | Auglýsingin keypt fyrir mistök 86 Mannleg mistök leiddu til þess að Stafrænt Ísland keypti auglýsingu á Facebook, þvert á stefnu stjórnvalda. | |
| 19:48 | Bogi biðst afsökunar 100 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir verkfall flugvirkja hafa haft heilmikil áhrif og ollið mikilli röskun í gærmorgun. Hann vill biðja farþega og viðskiptavini flugfélagsins afsökunar í kjölfar truflana og óþæginda sem það olli. | |
| 19:41 | „Mistök að fela honum forystu“ 95 Guðmundur Ingi Þóroddsson segir að það hafi verið mistök að fela nafna sínum, Guðmundi Inga Kristinssyni, forystu í mennta- og barnamálum. Hann telur rétt hafa verið að skipta um ráðherra en segir að það breyti því ekki að gagnrýna megi hvernig staðið var að brotthvarfi hans úr ríkisstjórn. | |
| 19:33 | Svepparisi fannst í Heiðmörk 79 Edyta Wyrzykowska átti ekki von á því að koma heim með tæplega þriggja kílóa kóngssvepp þegar hún fór í göngutúr í Heiðmörk. Sveppurinn er 38 sentímetrar á hæð og hatturinn um 32 sentímetrar í þvermál.Edyta segist fara mjög oft í gönguferðir um skóginn en í þetta sinn hafi hún alls ekki verið að leita að sveppum.„Þessi kóngssveppur fann mig. Ég var ekki að leita að sveppum, heldur bara að skoða og dást að þeim. Svo kom þessi óvænta uppákoma,“ segir Edyta.Kóngssveppurinn vegur 2.864 grömm. Edyta fann einnig nokkra minni kóngssveppi í Heiðmörk, þar á meðal tvo sem vógu 552 og 778 grömm.Hún segir slíkan fund geta gerst einu sinni á ævinni og lýsir honum sem töfrum íslenskrar náttúru og skógarins.Risinn fær þó ekki að standa lengi til sýnis. Edyta ætlar að nýta hann í eldhúsinu og segir að bæð | |
| 19:27 | „Þarna sést samt þetta eðli Flokks fólksins“ 59 Það er ekki óvanalegt að það gangi á ýmsu bak við tjöldin í stjórnmálum. Eðli Flokks fólksins kom hins vegar skýrt fram í skilaboðum sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns Flokks fólksins, sendi honum, að mati prófessors í stjórnmálafræði.Fréttastofa hefur skilaboðin undir höndum. Í þeim þrýstir Guðbjörg á Guðmund Inga að tilkynna um afsögn sína sem ráðherra þegar hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi. Þá hafði þegar verið ákveðið að Guðmundur skyldi láta af embætti, þvert á hans vilja.Guðbjörg segir Guðmundi Inga að tveir kostir séu í stöðunni fyrir hann að tilkynna um afsögn eftir veikindaleyfi – eða stríð. „ÞESSI SKILABOÐ VIRÐAST VERA SVOLÍTIÐ KALDRANALEG“ „Þetta er nú allt svolítið svona hráslagalegt þarna hjá Fl | |
| 18:15 | Teiknarans Halldórs Péturssonar minnst 52 Næstkomandi laugardag, 26. september kl. 13, verður dagskrá í Eddu – húsi íslenskunnar við Arngrímsgötu í Reykjavík, í tilefni af 110 ára afmæli Halldórs Pétursson teiknara og útgáfu bókarinnar Njálsbrenna og Grettissaga. | |
| 17:43 | Guðmundur hristi höfuðið yfir orðum Ingu 67 Afsögn Guðmundar Inga Kristinssonar úr ráðherraembætti og umfjöllun RÚV þess efnis voru í brennidepli í upphafi óundirbúinna fyrirspurna á Alþingi í dag. Fyrr í dag var greint frá afarkostum sem Guðmundi voru settir þegar hann var í veikindaleyfi.Guðrún Hafsteinsdóttir þingmaður Sjálfstæðisflokksins beindi spjótunum að Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra og formanni Flokks fólksins, í óundirbúnum fyrirspurnum og krafði Ingu um skýringar á málinu.Inga sagðist ekki ætla að ræða opinberlega málefni Guðmundar Inga en sagði að henni þætti leitt að hún og Guðmundur Ingi upplifðu samtöl þeirra með ólíkum hætti.Guðmundur Ingi var í þingsal og hristi höfuðið meðan hann hlustaði á Ingu ávarpa þingið. | |
| 16:59 | „Svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi“ 54 „Það eru auðvitað tvær hliðar á öllum svona málum. Guðmundur Ingi tók sjálfur þá ákvörðun að segja af sér sem ráðherra. Hann tilkynnti þetta, hann sagði frá þessu sjálfur og komst að þeirri niðurstöðu með hliðsjón af heilsufari sínu. Auðvitað segir það sig sjálft að svona ákvarðanir eru ekki teknar í tómarúmi.“ | |
| 16:25 | Húsasmiðjan flytur í Hafnarfjörð 55 Húsasmiðjan hefur fest kaup á lóðinni Óseyrarbraut 26 á hafnarsvæðinu í Hafnarfirði þar sem áformað er að byggja 16 þúsund fermetra vöruhús sem mun taka á móti allri vöru sem fyrirtækið flytur inn. | |
| 15:29 | Ragnar Þór forfallaðist í fyrirspurnartíma 65 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, var fjarverandi í þinginu en dag, en hann var seint gærkvöldi á vefsíðu Alþingis skráður til svara í óundirbúnum fyrirspurnartíma sem hófst klukkan 13:30 í dag. | |
| 15:01 | Nafnið villandi og ekki lýsandi fyrir heilkennið 66 Elísa Ósk Línadóttir, formaður PMOS-samtakanna á Íslandi, segir nýlega nafnbreytingu á heilkenninu mikilvæga. Hún lýsi því betur hvað fólk glími við sem greinist með heilkennð og það skipti máli. | |
| 14:55 | „Guð minn góður, hvernig eru þá hin?“ 70 „Ég verð nú bara að segja, virðulegur forseti, hér enn og aftur að ef þetta eru hlý og falleg skilaboð til þingmanna Flokks fólksins, guð minn góður, hvernig eru þá hin? Stríð, stríð. Hlý og falleg.“ | |
| 14:35 | Guðmundur: „Langbest að þeim samskiptum sé lokið“ 83 „Látum vera að þau komi illa fram við mig. Það kannski fylgir oft pólitík, mér finnst hún mjög skrýtin þessi pólitík stundum, en þegar þeir eru farnir að blanda fjölskyldu minni inn í málið þá finnst mér það vera komið langt út fyrir eðlileg samskipti.“ | |
| 14:09 | Inga spurð út í Guðmund Inga: „Þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott“ 62 Allt ætlaði um koll að keyra í þinginu þegar Inga Sæland var spurð út í aðdraganda þess að Guðmundur Ingi Kristinsson sagði af sér starfi mennta- og barnamálaráðherra. „Ég held að þér væri nær að stíga inn í eigin skítapott og reyna að hræra aðeins upp í honum í stað þess að koma hér fram með dylgjur og ósannindi,“ sagði Inga meðal annars við formann Sjálfstæðisflokksins. | |
| 13:06 | Ragnar afhenti Hákoni trúnaðarbréf 57 Ragnar G. Kristjánsson afhenti í dag Hákoni VIII Noregskonungi trúnaðarbréf sitt sem sendiherra Íslands í Noregi. | |
| 11:59 | Birtir skilaboð um uppsögn: „Kominn tími á að sannleikurinn komi í ljós“ 71 Guðmundur Ingi Kristinsson fyrrverandi hefur birt samskipti sín við Guðbjörgu Ingu Magnúsdóttur þáverandi aðstoðarmann sinn og eiginkonu Ragnars Þórs Ingólfssonar eftirmanns hans í ráðherraembætti frá því í janúar þar sem honum var tjáð að tveir kostir væru í stöðinni, uppsögn eða stríð. Guðmundur segir svíða mest hvernig átt hafi verið við fjölskyldu hans í málinu. | |
| 07:46 | Andlát: Baldur Sveinsson 74 Baldur Sveinsson, kennari og flugvélaljósmyndari, er látinn 84 ára að aldri. Hann lést á lungnadeild Landspítalans í Fossvogi 15. september. |
| 23:06 | Uppsagnir hjá ráðuneytinu 51 Tveimur starfsmönnum heilbrigðisráðuneytisins hefur verið sagt upp störfum, en báðir gegndu þeir stöðu sérfræðings innan ráðuneytisins. | |
| 22:30 | Nota bæði belti og axlabönd í búrinu 42 Mma-bardagakvöldið Glacier Fight Night verður haldið í þriðja sinn laugardaginn 3. október næstkomandi. | |
| 21:01 | Móðir lagði ríkið í Hæstarétti vegna vanrækslu á EES 42 Móðir sem fékk of lágar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði vann skaðabótamál gegn ríkinu. Íslenska ríkið hafði ekki innleitt EES-lögin nógu fljótt en þeim hefur nú verið breytt árið 2025. Hún fær 2,7 milljónir í skaðabætur. | |
| 20:30 | Uppsagnir í heilbrigðisráðuneytinu 54 Tveimur starfsmönnum í heilbrigðisráðuneytinu hefur verið sagt upp störfum. Báðir starfsmennirnir gegna stöðu sérfræðings í ráðuneytinu. Þetta staðfestir Margrét Erlendsdóttir upplýsingafulltrúi ráðuneytisins.Hún segir að greint hafi verið frá uppsögnunum á starfsmannafundi í dag. Starfsmönnunum hafi verið sagt upp til þess að mæta aðhaldskröfu ríkisstjórnarinnar, sem hefur áhrif á stofnanir ríkisins þar á meðal ráðuneytin. | |
| 19:15 | Notaði rangan kjörseðil og skrifaði á hann „Já“ 58 Aðeins var eitt ágreiningsatkvæði úr Reykjavíkurkjördæmi suður á boði landskjörstjórnar eftir síðustu þjóðaratkvæðagreiðslu. | |
| 17:20 | Segja málflutning seðlabankastjóra óboðlegan: „Fólkið hefur þegar tekið skellinn“ 46 Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í hádegisfréttum í dag um að hægja þurfi á launahækkunum og að ekki sé hægt að bæta launafólki hækkun olíuverðs.Í ályktun félagsins segir að ummæli Ásgeirs um að heimilin gætu þurft að taka á sig hækkun olíuverðs veki sérstaka athygli í ljósi nýrrar skýrslu Seðlabankans um fjármálastöðugleika sem var birt í morgun. HVERGI TALAÐ UM AÐ LAUN SÉU ÓGN VIÐ FJÁRMÁLASTÖÐUGLEIKA Þar séu helstu hættur sem steðja að efnahags- og fjármálakerfinu sagðar felast í alþjóðlegum ófriði, hækkandi hrávöruverði, háum vöxtum, óróa á erlendum mörkuðum og vaxandi kerfisáhættu í byggingariðnaði. Í skýrslunni sé aftur á móti hvergi að því vikið að laun séu ógn við fjármálastöðugleika.Réttast væri að mati félaganna að seðlabanka | |
| 17:02 | „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ 43 Verkfallsaðgerðir flugvirkja höfðu áhrif á um sex þúsund manns að sögn Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair. Hann biður farþega afsökunar og segist létt yfir því að verkfalli hafi verið aflýst. Grafalvarlegt ástand skapist þegar flugtengingar við landið rofni að miklu leyti. | |
| 14:55 | Dagný Ósk látin 100 Dagný Ósk Vestmann er látin þrjátíu og átta ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Dagný opnaði sig um veikindin í viðtali á Vísi um helgina þar sem hún hvatti fólk til þess að staldra við og finna gleðina í litlu hlutunum í lífinu. Hún lætur eftir sig eiginmann og tvö börn. | |
| 14:46 | Rétti fram þúsund króna seðil og fékk 30 kíló af kókaíni 54 Maður sem ákærður hefur verið í sjókistumálinu svokallaða rétti erlendum mönnum 1.000 króna seðil áður en töskum, sem taldar eru hafa innihaldið um 30 kíló af kókaíni, var komið fyrir í bifreið hans. | |
| 14:33 | Henda rúmdýnum og þvottavélum 48 „Manni svíður þessi kostnaður. Þarna eru mjög fáir að búa til mikinn kostnað fyrir hina,“ segir Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Sorpu. | |
| 13:08 | Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður 47 Lagt er til að árspassi að Geysi, Gullfossi og þjóðgarðinum á Þingvöllum kosti 4.500 krónur samkvæmt nýjum frumvarpsdrögum atvinnuvegaráðuneytisins. Lægra gjald, 3.000 krónur, verði í boði fyrir heimsóknir frá 1. nóvember til og með 31. maí árið eftir. Fólk með skattalega heimilisfesti á Íslandi fái passann ókeypis. | |
| 12:47 | Valur ráðinn yfirlæknir og Anna aðstoðaryfirlæknir 45 Valur Helgi Kristinsson hefur verið ráðinn yfirlæknir og Arna Reynisdóttir aðstoðaryfirlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN). | |
| 12:40 | Lögreglan lýsir eftir Emil Eydal 62 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Emil Eydal Haraldssyni sem er tíu ára. | |
| 12:21 | Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi 77 Framkvæmdastjóri hjá bílaumboðinu BL er einn þeirra sem handteknir voru í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu vegna gruns um fíkniefnabrot í gær. | |
| 11:36 | Flugvirkjar aflýstu verkfalli eftir samkomulag við Icelandair 41 Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair hafa komist að samkomulagi um að flugvirkjar aflýsi verkfalli félagsins sem hófst á miðnætti.„Aðilar eru sammála um að nýta næstu 4 vikur til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka samningagerð um nýjan kjarasamning,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá félögunum.Þar segir jafnframt að allt flug Icelandair frá Keflavík og Reykjavík síðdegis sé á áætlun. Samkvæmt brottfarartöflum á vef Isavia fer fyrsta flug Icelandair frá Keflavík til London Heathrow klukkan 16:10. Þá er flug Icelandair frá Reykjavík til Akureyrar á áætlun klukkan 13:45. | |
| 11:35 | Framkvæmdastjóri bílaumboðs í skýrslutöku 63 Framkvæmdastjóri sölusviðs hjá stóru bílaumboði var færður í skýrslutöku í gær vegna máls er varðar stórfelld fíkniefnalagabrot og peningaþvætti, en fjöldi manns var handtekinn í aðgerðum lögreglu vegna málsins í gær. | |
| 11:18 | Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu 69 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók á annan tug manna í umfangsmiklum aðgerðum í gær. Sex voru leiddir fyrir dómara við Héraðsdóm Reykjavíkur í gærkvöldi og úrskurðaðir í gæsluvarðhald. | |
| 10:50 | „Lá í loftinu allan tímann“ 54 „Ég var rétt í þessu að frétta þetta og ég segi bara að þetta lá í loftinu allan tímann. Þetta kemur mér ekkert á óvart þrátt fyrir að hafa verið í samtölum við ráðuneytin og ákveða ráðherra,“ segir Óskar. | |
| 09:37 | Óvænt frumvarp innviðaráðherra beint á dagskrá 50 Forseti Alþingis hefur boðað til fundar með þingflokksformönnum klukkan 10:45, þar sem dagskrárbreyting þingsins verður rædd. Ríkisstjórn afgreiddi í morgun frumvarp Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra og það kemur fyrir þingið í dag. | |
| 07:00 | Wolt-málið: Sendlar fá greidd laun til einkahlutafélaga 51 Sendlar sem keyra út matarsendingar fyrir Wolt hafa í einhverjum tilfellum fengið greitt fyrir vinnu sína í gegnum einkahlutafélög. Fréttastofa hefur undir höndum gögn sem sýna fram á þetta.Maðurinn sem átti einkahlutafélagið sem gögnin fjalla um notaði félagið eingöngu til að fá greitt frá Wolt. Félag mannsins var stofnað 2023 en varð gjaldþrota 2025.Einn ársreikningur liggur fyrir og er hann fyrir 2023. Þá var félagið með fjögurra milljóna króna rekstrartekjur, allt vegna sendlavinnu fyrir Wolt samkvæmt því sem eigandinn segir sjálfur. Í gögnunum kemur jafnframt fram að fleiri en einn sendill hafi fengið greitt fyrir vinnu sína hjá Wolt í gegnum einkahlutafélag mannsins.Mikil umræða hefur verið um heimsendingarfyrirtækið Wolt síðustu vikuna eftir að sendlar sem keyra út fyrir fyrirtækið |
| 23:55 | „Hefði getað farið svo miklu verr“ 73 „Honum líður betur en langt bataferli er fram undan.“ | |
| 23:45 | Stal hálfum bíl og flúði til Spánar 71 Gróa Hreinsdóttir, íslenskur rútubílstjóri, segir farir sínar ekki sléttar eftir að vinnufélagi hennar stakk af með hálfgreidda Opel-bifreið sem hún seldi honum af greiðasemi með nokkrum afslætti. Maðurinn stakk af með bifreiðina til Spánar. | |
| 22:32 | Færðir fyrir dómara eftir handtökurnar 68 Að minnsta kosti þrír hafa verið færðir fyrir dómara í kvöld, í fylgd lögreglu, eftir að hafa verið handteknir í stórri aðgerð fyrr í dag grunaðir um aðild að stórfelldum fíkniefnalagabrotum og peningaþvætti. | |
| 22:30 | Fóru að breyta bókunum strax og fregnir bárust 61 Rekstraraðilar í ferðaþjónustu eru þegar farnir að taka eftir neikvæðum áhrifum boðaðra verkfallsaðgerða flugvirkja sem hefjast eiga á miðnætti, og eru uggandi yfir stöðunni þar sem óljóst er hversu lengi óvissan mun standa yfir og hafa áhrif. | |
| 22:08 | Segist þurfa að troða ferðamönnum í rafbíla 68 Ríkisstjórnin vill setja hraðari rafvæðingu bílaflotans í forgang til að draga úr losun. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir að bílaleigur ráði hvort þær verði í fararbroddi orkuskipta á Íslandi eða dragbítur. Bílaleigur hafi hingað til keypt hlutfallslega miklu færri rafmagnsbíla en almenningur. Eru bílaleigur að draga lappirnar eða ættu stjórnvöld að líta sér nær?Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds-Bílaleigu Akureyrar, og Jón Ásgeir Haukdal Þorvaldsson, teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun, voru gestir Kastljóss í kvöld.Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segir bílaleigur ekki standa í vegi fyrir rafvæðingu bílaflotans heldur ferðamenn sem vilji ekki rafbíla. Teymisstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun segir enga tæknilega fyrirstöðu fyrir rafvæðingu b | |
| 21:52 | Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur 65 Lögreglan í Vestmannaeyjum hefur borist nokkrar tilkynningar um að festingar á framdekki reiðhjóla grunnskólabarna hafi verið losaðar þannig að dekkið fellur af þegar hjólað er af stað. Lögreglan biðlar til foreldra um að ræða við börn sín. | |
| 20:45 | Stýra götulýsingu þegar börnin fara í skólann 61 Áætlað er að ný götuljósastýring verði komin í gagnið í Reykjavík í desember. Með nýju stýringunni fást meðal annars rauntímaupplýsingar um hvort það hafi kviknað eða slokknað á ljósastaurum. | |
| 19:15 | Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu 68 Fjöldi manns var handtekinn í samhæfðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun í tengslum við rannsókn á stórfelldu fíkniefnalagabroti, dreifingu og sölu og peningaþvætti. | |
| 17:39 | Svarar ráðherra og segir nær engan áhuga á rafbílum 68 Forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar segir nær enga erlenda ferðamenn vilja leiga sér rafbíl og segist ekki skilja hvaðan umhverfisráðherra fái þær tölur sem hann nefnir um fjárstuðning til bílaleiga í nafni loftlagsmála. Hann segist sakna samráðs við bílaleigur, það strandi ekki á þeim að bregðast við en reksturinn þurfi að standa undir sér. | |
| 17:39 | „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ 65 Forstjóri Hölds Bílaleigu Akureyrar segir nær enga erlenda ferðamenn vilja leiga sér rafbíl og segist ekki skilja hvaðan umhverfisráðherra fái þær tölur sem hann nefnir um fjárstuðning til bílaleiga í nafni loftlagsmála. Hann segist sakna samráðs við bílaleigur, það strandi ekki á þeim að bregðast við en reksturinn þurfi að standa undir sér. | |
| 15:59 | Segir ummæli Guðmundar Inga ekki svara verð 100 Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ummæli Guðmundar Inga Kristjánssonar, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, í síðustu viku ekki svara verð.Guðmundur Ingi sagði af sér sem ráðherra í vetur og sagði sig úr Flokki fólksins. Hann greindi frá ástæðum afsagnar sinnar í viðtali við fréttastofu í síðustu viku og sagði Ingu Sæland, formann Flokks fólksins, hafa krafist afsagnar hans á sjúkrabeði.Honum hefði blöskrað þegar aðstoðarkona hans sendi honum texta í kjölfarið um hvernig hann ætti að segja af sér eftir samtal við aðstoðarmann Ingu.Aðstoðarkona hans var Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, eiginkona Ragnars Þórs. Hann kom inn í ríkisstjórnina eftir að Guðmundur Ingi lét af embætti og tók við þáverandi ráðuneyti Ingu Sæland, sem tók við ráðuneyti Guðmundar Inga. | |
| 15:54 | Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum 68 Kristján Loftsson framkvæmdastjóri Hvals hf segist ætla í hart fari svo að hvalveiðir verði bannaðar. Hann segist ekki halda að íslensk stjórnvöld muni þora að framfylgja banninu, skattgreiðendur muni borga brúsann fyrir málaferlin. | |
| 13:24 | SA ætla ekki að hækka laun umfram kjarasamninga 63 Stjórn Samtaka atvinnulífsins segir að ekki komi til greina að fyrirtæki taki á sig kostnaðarauka til að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði sagt upp. Hún vill að kjarasamningar haldi út samningstímann þrátt fyrir að verðbólga sé meiri en forsenduákvæði þeirra gerðu ráð fyrir.Stjórnin tiltekur fimm áherslur til að bregðast við forsendubresti. Þeirra á meðal eru að ekki verði samið við verkalýðshreyfinguna um atriði sem feli í sér aukinn kostnað, svo sem með hækkun launa. Ekki stendur heldur til að semja um ný vinnumarkaðstengd réttindamál.SA hvetur fyrirtæki til að halda aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út samningstímann. Nokkur fyrirtæki hafa tilkynnt að þau hyggist fresta eða draga úr verðhækkunum á næstunni.Stjórnin segir löngu tímabært að aðilar vinnumarkaðarins og st | |
| 12:30 | Aldargamall Höfði á mikið inni 63 „Höfði er vel viðuð bygging. Þetta hús á því mikið inni enn þótt það sé orðið meira en aldargamalt,“ segir Björgvin S. Stefánsson húsasmiður hjá Þúsund fjölum. Hann er framkvæmdastjóri þess fyrirtækis, sem hefur mikið lagt sig eftir að sinna endurbótum og viðgerðum á gömlum húsum. Höfði, móttökuhús Reykjavíkurborgar, við Borgartún er eitt af þeim. | |
| 11:53 | Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ 85 Innviðaráðherra vísar á bug því að Icelandair hafi fengið vilyrði stjórnvalda um inngrip í verkfall flugvirkja. Hann segir þær ásakanir furðulegar. | |
| 11:30 | Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum 61 Félags- og húsnæðisráðherra telur að það skorti traust og virðingu gagnvart kjarasamningum, bæði hjá atvinnulífinu og hinu opinbera. Ekki sé langur tími til stefnu til að bregðast við brostnum forsendum kjarasamninga. | |
| 11:07 | „Bregðast þarf við áður en banaslys verður“ 74 „Bregðast þarf við áður en banaslys verður,“ sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra, um akstur barna undir bílprófsaldri á farartækjum sem komast á allt að hundrað kílómetra hraða, á Umferðarþingi Samgöngustofu í Gamla bíói í morgun. | |
| 10:13 | Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir 61 Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 9. október vegna gruns um áralangt gróft ofbeldi í garð sambýliskonu sinnar. Hann er meðal annars grunaður um að hafa nauðgað konunni ítrekað á meðan hún svaf en myndir af slíku athæfi fundust í síma hans við rannsókn málsins. | |
| 08:25 | 100 milljónir gufuðu upp við áfrýjun 73 Karlmaður sem flutti hingað til lands og slasaðist alvarlega eftir nokkurra mánaða vinnu fær ekki þær tryggingabætur sem honum höfðu verið dæmdar í héraði. Landsréttur sneri fyrri dómi við. Dómararnir sögðu að ekki hefði verið sýnt fram á að víkja ætti frá almennum viðmiðum um bætur.Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Sjóvá-Almennar til að greiða manninum 147 milljónir króna í bætur vegna örorku sem maðurinn hlaut í vinnuslysi. Frá því áttu að dragast greiðslur upp á 47 milljónir sem tryggingafélagið hafði greitt manninum á grundvelli síns mats.Bæturnar miðast við hverjir framtíðartekjumöguleikar mannsins hefðu verið ef ekki væri fyrir slysið.Tryggingafélagið og manninn greindi á um hvort miða ætti bætur við meðallaun síðustu þriggja ára eða launin sem maðurinn hafði í því starfi sem hann gegndi | |
| 05:53 | Grunaður um gróft ofbeldi og ítrekaðar nauðganir árum saman 84 Landsréttur staðfesti í síðustu viku úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra um að karlmaður sæti gæsluvarðhaldi til 9. október. Maðurinn er grunaður um ítrekuð kynferðisbrot og annað ofbeldi gegn sambýliskonu sinni á margra ára tímabili.Konan tjáði sig um áralangt ofbeldi mannsins gagnvart sér þegar lögreglan kom á heimili fólksins undir lok ágúst. Hún lýsti miklu líkamlegu ofbeldi, kynferðislegu ofbeldi, stjórnun og kúgun. Hún sagði manninn ítrekað hafa tekið sig hálstaki auk þess sem hann hefði stungið hana í bakið og neytt sig til kynlífs.Við rannsókn lögreglu kom í ljós myndefni í síma mannsins þar sem hann virtist hafa mök við konuna meðan hún svaf. Konan vissi ekki af þessum upptökum og varð fyrir áfalli þegar hún sá myndirnar.Maðurinn hefur játað sök að hluta, bæði kynferðisbrot og o |
| 23:15 | Vilja breytingar: Leifsstöð kemur verst út 61 FÍB ber gjaldtökuna við Leifsstöð saman við tíu evrópskar flugstöðvar. | |
| 22:00 | Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni 44 Pétur Maack Þorsteinsson, formaður Sálfræðingafélags Íslands, hefur mjög miklar áhyggjur af stöðu mála innan SÁÁ og telur að stjórn samtakanna hafi gengið of langt í afskiptum sínum af faglegu starfi. Það sé ekki hlutverk félagaskipaðrar stjórnar að hafa eftirlit með heilbrigðisþjónustunni sem veitt er undir samningi við Sjúkratryggingar. | |
| 20:36 | Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði 51 Þann 1. október verður tekin upp gjaldskylda á bílastæðum við Stúdentagarða vð Háskóla Íslands og mega einungis þeir sem eru með íbúakort leggja í stæðunum. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta segir íbúa á görðunum hafa verið orðna langþreytta á að geta ekki nálgast stæði við eigin heimili, mikil ásókn hafi verið í stæðin undanfarin ár. Íbúi lýsir yfir miklum áhyggjum vegna málsins. | |
| 20:15 | Kristrún og Þorgerður í New York 44 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra eru staddar í New York-borg í Bandaríkjunum. | |
| 18:30 | Icelandair gefur út yfirlýsingu 54 Frestun á verkfalli flugvirkja Icelandair, sem á að hefjast á miðnætti aðfaranótt miðvikudags, myndi ekki draga úr þeim skaða sem þegar hefur orðið heldur framlengja óvissutímabilið og auka tjón allra aðila enn frekar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu Icelandair. | |
| 17:55 | Valdimar og Júlíus Viggó taka sæti á þingi 41 Tveir varaþingmenn tóku sæti á Alþingi í dag.Valdimar Breiðfjörð Birgisson settist á þing fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Júlíus Viggó Ólafsson hefur tekið sæti fyrir Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins.María Rut Kristinsdóttir verður starfandi þingflokksformaður Viðreisnar í fjarveru Sigmars.Diljá Mist staðfesti við mbl.is í dag að hún væri í veikindaleyfi. Vísir hafði eftir starfandi þingflokksformanni Viðreisnar að það sama gilti um Sigmar.Valdimar Breiðfjörð Birgisson og Júlíus Viggó Ólafsson í þingsal.RÚV / Ragnar Visage | |
| 17:34 | Lárus Welding á endastöð hjá MDE 67 Mál Lárusar Welding á hendur íslenska ríkinu verður ekki tekið fyrir í yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu (MDE). Dómstóllinn hafði áður komist að þeirri niðurstöðu að ekki hefði verið brotið gegn rétti Lárusar í Stím-málinu svokallaða. | |
| 17:10 | Diljá komin í veikindaleyfi 91 Júlíus Viggó Ólafsson tók í dag sæti á Alþingi sem varaþingmaður fyrir Diljá Mist Einarsdóttur, þingmann Sjálfstæðisflokksins. | |
| 16:02 | Hefði þegið samtal við Jóhannes 65 Stofnandi Læsis segir nýlega umræðu um smáforritið að miklu leyti ósanngjarna. Forritið sé ekki samfélagsmiðill og ekki ætlað börnum. | |
| 15:38 | Sigmundur sendi kveðju á Sheeran 54 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins virðist aðdáandi breska tónlistarmannsins Ed Sheeran, ef eitthvað er að marka nýjustu færslu Sigmundar á X. | |
| 15:05 | Varar við áhrifum þess að setja lög á verkfall flugvirkja 47 Kjarasamningar flugvirkja losnuðu um síðustu áramót og viðræður hófust í nóvember á síðasta ári. Þann 13. febrúar tóku Samtök atvinnulífsins ákvörðun um að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Illa hefur gengið að ná saman og í upphafi síðustu viku var verkfallsboðun samþykkt með 88,3 prósentum greiddra atkvæða.Ótímabundið verkfall flugvirkja hefst því að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags. Fundur í deilunni fyrir helgi reyndist árangurslaus og ekki hefur verið boðað til nýs fundar. Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, var til viðtals í Vikulokunum á laugardaginn.Sérfræðingur í samningatækni varar við áhrifum þess að stjórnvöld setji lögbann á verkfall flugvirkja. Ótímabundið verkfall hefst að óbreyttu aðfaranótt miðvikudags.Samningurinn sem rann úr gildi um áramótin var undirr | |
| 14:50 | Vill ekki að eftirlitið kæfi hlaðvörpin 64 Eftirlit má ekki verða til þess að kæfa hlaðvörp í fæðingu, segir Logi Einarsson menningarmálaráðherra. Árni Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spurði hann á Alþingi hvort eðlilegt væri að fjölmiðlanefnd hótaði hlaðvarpsfólki dagsektum á meðan beðið væri eftir breytingum á fjölmiðlalögum. | |
| 14:35 | Segir legstein ömmu sinnar hafa horfið 56 Guðlaugur Ottesen Karlsson greinir frá því í færslu á Facebook að legsteinn ömmu sinnar hafi horfið úr Fossvogskirkjugarði einhvern tímann á síðustu tveimur til þremur vikum. | |
| 13:48 | Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna 54 Embætti landlæknis hefur fellt starfsleyfi sex lækna hér á landi niður. Að auki var starfsleyfi eins læknis takmarkað. Þetta var gert í kjölfar þess að blaðamaður Heimildarinnar sendi embættinu lista yfir þrettán lækna sem höfðu misst starfsleyfi erlendis en væru samt sem áður með starfsleyfi hér á landi. | |
| 12:31 | Sigmar kominn í veikindaleyfi 63 Valdimar Breiðfjörð Birgisson tekur sæti á Alþingi í dag sem varaþingmaður fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. | |
| 12:14 | Nýtt tímabundið hverfi rís í Hafnarfirði 54 Hafnarfjarðarbær og Stólpi hafa náð samningum um uppbyggingu á nýju tímabundnu hverfi sem rísa á við Krýsuvíkurveg og Hvaleyrarveg í Hafnarfirði.Byggja á 130 hús með 260 íbúðum sem verða 35 fermetrar. Fyrirtækið Stólpi sér um uppsetningu og leigir húsnæðið til fyrirtækja til afnota fyrir starfsfólk þeirra.„Þetta er í raun og veru mjög góð lausn fyrir þessi fyrirtæki,“ segir Orri Björnsson, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar. „Þetta er líka gott fyrir okkur því að við reiknum með að það fækki íbúum í óleyfisíbúðum sem eru því miður of margar í atvinnuhverfum og við lítum þannig á að þetta verði öruggara og betra húsnæði fyrir þá sem þar búa,“ segir Orri.Stefnt er að því að fyrstu íbúðirnar rísi á síðari hluta 2027. EKKI VERIÐ GERT ÁÐUR Á ÍSLANDI Lóðarleigusamningar verða til 10 ára. Hægt v | |
| 11:50 | „Tekjutapið þegar orðið töluvert“ 51 „Þetta leggst vitaskuld illa í mig en ég vona innilega að þeir aðilar sem um ræðir nái saman og það verði hægt að afstýra þessu verkfalli.“ | |
| 11:46 | Sigmar í veikindaleyfi 100 Varaþingmaður tekur í dag sæti á Alþingi fyrir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformann Viðreisnar. Sigmar hefur verið fjarverandi frá upphafi þingvetrar og er kominn í veikindaleyfi. | |
| 09:19 | Leggja niður samninganefnd sem var komið á fót í borgarstjóratíð Davíðs 44 Borgarráð samþykkti í síðustu viku að leysa samninganefnd borgarinnar frá störfum og fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga að sjá um gerð kjarasamninga fyrir hönd borgarinnar.Samninganefndin var upphaflega sett á fót 1989 og sá um kjarasamninga við fjölda stéttarfélaga síðan. Nefndin hefur verið skipuð af borgarstjóra hverju sinni. Það gerðist fyrst þegar Davíð Oddsson var borgarstjóri. Síðan hafa eftirmenn hans skipað nýjar samninganefndir, þar til nú.Reykjavíkurborg hyggst spara 65,5 milljónir króna með því að leysa samninganefndina upp.Í greinargerð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra segir að samstarf ríkis og sveitarfélaga í kjaramálum hafi aukist til muna á allra síðustu árum og að hagsmunir borgarinnar liggi í þéttu og öflugu samstarfi á vettvangi kjaramála hins opinbera. Þar kemur ein | |
| 08:52 | Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum 42 Borgarráð hefur samþykkt tillögu Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að fela Sambandi íslenskra sveitarfélaga (SÍS) umboð til kjarasamningsgerðar fyrir hönd Reykjavíkurborgar. Samninganefnd verður þannig leyst undan störfum. Þá verður eignarhald og ábyrgð Jafnlaunastofu endurskoðað. |
| 22:23 | Úttekt VG: Þögnin ein í Grindavík 66 Þögnin ein ríkir í Grindavík, aðeins vindurinn gnauðar milli tómra húsa hefst frásögn og úttekt norska dagblaðsins VG á stöðu Grindavíkur eftir hamfarirnar 2023. Blaðamaður ræðir við Grindvíkinga sem hafa sitt að segja og Siggi bakari er á sínum stað, segist stundum ekki viss um hvort hann reki bakarí eða safn. | |
| 22:17 | Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ 72 Parkour-inniaðstaða sem hefur verið nýtt af iðkendum jaðaríþróttarinnar í rúm fimm ár verður jöfnuð við jörðu innan nokkurra mánaða og enn hefur ekki fundist nýtt húsnæði fyrir starfsemina. Sjálfboðaliðar sem hafa leigt rýmið og boðið upp á kennslu sjá fram á að þurfa að færa það sem bjargað verður í gám og leggjast í dvala yfir veturinn. | |
| 22:01 | Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman 66 Ríkið hafði betur gegn hjónunum Ingu Dóru Sigurðardóttur og Berki Arnviðarsyni í Landsrétti. Málið varðar 2,5 prósenta skattaálag sem hjónunum var gert að greiða þegar þau fluttu heimilisfestu fyrirtækis síns frá Danmörku til Íslands afturvirkt. Þau fá 23 milljóna króna álagið ekki endurgreitt. | |
| 21:30 | Enn eitt árið sem fólk er sent upp á fjallveg með 20 kílómetra hámarkshraða á köflum 58 Umfangsmiklar framkvæmdir hafa staðið yfir í Gufudalssveit síðan 2019. Aðeins ein brú er eftir til að ljúka verkinu sem hefur verið bæði seinlegt og kostnaðarsamt.Framkvæmdir á Vestfjarðavegi nr. 60 hafa tekið lengri tíma og kostað meira en gert var ráð fyrir. Gylfi Ólafsson, formaður Fjórðungssambandsins, segir tafir leiðinlegar því verkefnið sé mikilvægt.„Með þessari brú klárast vegur fyrir tvo firði og eitt fjall. Sú framkvæmd nýtist ekki fyrr en brúin er komin á. Það er búið að verja mjög miklum peningum í að þvera firðina en það á eftir að klára þessa brú og það þarf bara að gerast sem fyrst.“Árið 2019, þegar Vegagerðin réðst í vegabætur í Gufudalssveit, stóð til að verkinu yrði lokið fyrir árslok 2023. Í vetur kynntu stjórnvöld drög að samgönguáætlun þar sem fram kom að verklokin yrð | |
| 21:27 | Mál vegna framgöngu Helga hjá ákærusviði 58 Héraðssaksóknari vísaði í maí máli er varðar kvartanir vegna Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, til ákærusvið. | |
| 20:20 | „Lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál““ 56 Í opnu bréfi til Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hefur birt á samfélagsmiðlum skorar hann á ráðherra að taka það til skoðunar að hætta notkun lestrarsmáforritsins Læsis og taka aftur upp skráningu heimalesturs á pappír. | |
| 19:24 | Útlendingar nú 71% þeirra sem fá fjárhagsaðstoð 61 Lagt er til að sérstakur spretthópur verði stofnaður hjá Kópavogsbæ til að fara yfir fjárhagsaðstoð og önnur stuðningskerfi sveitarfélagsins. | |
| 19:02 | Kvartanir um framferði lögreglustjóra á borði héraðssaksóknara 56 Tveimur kvörtunum sem bárust nefnd um eftirlit með lögreglu vegna Helga Jenssonar, lögreglustjóra á Vestfjörðum, í vor var vísað til héraðssaksóknara.Atvikin sem kvartað var undan áttu sér stað á Stútungi, þorrablóti Flateyringa. Önnur kvörtunin fjallaði um meint ofbeldi af hálfu lögreglustjórans. Í hinu erindinu var kvartað undan meintu kynferðislegu áreiti lögreglustjórans sem vísaði að minnsta kosti tvívegis til valds embættis síns.Héraðssaksóknari tók kvartanirnar til rannsóknar. Þeirri rannsókn lauk í maí. Þá var því vísað til ákærusviðs. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara.Þótt málið hafi beðið hjá ákærusviði í nokkra mánuði eftir að rannsókn lauk er það ekki óalgengt. Þegar kemur að því að ákvörðun verði tekin eru þrjár leiðir sem málið getur fari | |
| 15:05 | Áttatíu sinnum til Íslands 89 Íslandsvinurinn Catherine Ulrich er nú mætt til landsins í 80. sinn. Hún hefur unnið ötullega að því að kynna Frökkum land og þjóð. | |
| 14:46 | Ferjuðu 1.799 steina upp Himnastigann 59 Fjöldi fólks á öllum aldri tók þátt í að ferja 1.799 steina upp himnastigann í Kópavogi í dag fyrir Píeta samtökin. Með þessu vildu samtökin vekja athygli á nýju númeri hjálparsíma samtakanna – 1799, og minna á að fólk þurfi ekki að bera þungar byrðar ein. Það er hjálp að fá.Þegar fréttastofa leit við höfðu verið farnar hátt í þúsund ferðir með steina upp stigann.Eva Ólafsdóttir, félagsráðgjafi og meðferðaraðili hjá samtökunum, og Thelma Smáradóttir, fagstjóri og sálfræðingur hjá samtökunum, skipulögðu viðburðinn.„Þetta þýðir í rauninni bara að við þurfum ekki að bera sársaukann ein, við getum hjálpast að bera þungann upp saman, það er að segja steinana. Þannig að þetta er svolítið samstaðan og teymisvinna og það er alltaf hjálp að fá, það er alltaf von,“ segir Thelma. | |
| 14:30 | Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ 83 Jóhannes Haukur Jóhannesson leikari hefur sent Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra bréf vegna smáforrits sem hann þarf að nota, með barninu sínu, til að skrá heimalestur. Hann segir forritið ekkert annað en samfélagsmiðil sem ýti undir óþarfa samanburð. Hann telur að snúa ætti aftur til þess að skrá lestur á blað. | |
| 12:50 | Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi 58 Foreldrar í Árbæ hafa ráðist í skipulagt foreldrarölt eftir að nokkur börn greindu frá hópi karlmanna sem eltu börnin í hverfinu. Foreldri segir málið á borði lögreglu og hvetur íbúa til að taka þátt í foreldrarölti. | |
| 10:54 | Ákærður fyrir stórfellt brot gegn barnabarni sínu 64 Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni og stórfellt brot í nánu sambandi gegn barnabarni sínu.Meint brot átti sér stað á heimili mannsins 22. desember 2023. Maðurinn er ákærður fyrir að hafa dregið buxnaskálmar á barnabarni sínu upp að mjöðmum og nuddað ber læri hennar og nára, farið með hönd undir nærbuxur og snert og nuddað kynfæri hennar. Með þessu hafi ákærði ógnað lífi, heilsu og velferð stúlkunnar.Ekki kemur fram í ákærunni hversu gamalt barnið var þegar brotið átti sér stað en í einkaréttarkröfu kemur fram að stúlkan sé ólögráða. Foreldri krefst þess fyrir hönd hennar að maðurinn greiði henni 3,5 milljónir króna í miskabætur.Málið var tekið fyrir í héraðsdómi Reykjavíkur í vikunni. | |
| 10:36 | Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks 63 Ný stjórn Ungs jafnaðarfólks var kjörin á landsþingi þeirra um helgina. Jóhannes Óli Sveinsson, forseti samtakanna, var kjörinn til tveggja ára á síðasta landsþingi og þurfti því ekki að endurnýja umboð sitt. Fimm nýir fulltrúar voru kjörnir í stjórn samtakanna. | |
| 10:02 | „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ 80 Benedikta Guðrún Svavarsdóttir er hláturmildur framkvæmdastjóri á Seyðisfirði, hún gerir góðan mat og hefur gaman af því að bjóða fólki í gusur. En hún er einnig grjótharður nagli, formaður Vár – félags um verndun fjarðar og berst nú með oddi og egg gegn ráðabruggi um að koma niður sjókvíum í Seyðisfirði. Þar hefur dregið til tíðinda á undanförnum vikum og dögum. | |
| 10:01 | Séu að sökkva og landlæknir hótað að stöðva starfsemina 88 Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. | |
| 10:01 | Hótuðu að loka Vogi 59 Embætti landlæknis setti SÁÁ úrslitakosti í síðustu viku og tilkynnti að ef ekkert yrði að gert á næstu tveimur virkum dögum þyrfti að loka sjúkrahúsinu Vogi. Til að forðast þetta þyrfti sérfræðilæknir að gangast við faglegri ábyrgð á heilbrigðisstarfseminni fyrir klukkan 16 síðasta mánudag. | |
| 08:27 | Tuttugu lögðu ólöglega 59 Lögreglan þurfti að sinna fjölda ökumanna í nótt sem voru í órétti. Að undanskildu einu innbroti er dagbók lögreglu í dag undirlögð umferðarlagabrotum. | |
| 07:54 | Kviknaði í tölvu á eldavél 59 Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna elds í Hlíðahverfi í Reykjavík. Þar hafði kviknað í tölvu sem hafði verið skilin eftir á eldavél. Af þessu varð mikill reykur og reykskynjarar fóru í gang.Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu var eldurinn lítill og búið var að slökkva hann áður en slökkviliðsmenn komu á staðinn. Þeir tóku að sér að reykræsta húsið. Slökkviliðsmaður að störfum.RÚV / Ragnar Visage | |
| 07:30 | Skipuleggur eigin jarðarför 100 „Mig langar bara að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum,“ segir Dagný Ósk Vestmann aðspurð hvað henni sé ofarlega í huga á átakanlegum tímamótum. Hún er þrjátíu og átta ára gömul tveggja barna móðir og stendur frammi fyrir því að eiga einungis nokkrar vikur ólifaðar. Í stað þess að skipuleggja næsta barna- eða brúðkaupsafmæli er hún að skipuleggja og safna fyrir eigin kistulagningu og útför. |
| 23:10 | Ekkert minnst á drónasamstarf í íslensku tilkynningunni 54 Ísland og Úkraína eru sögð vinna að samkomulagi um samstarf á sviði ómannaðra kerfa og þar á meðal dróna. | |
| 22:28 | Fróðleikur um 600 bæi í nýrri Búkollu 43 Fjórða útgáfan af ritinu Byggðir og bú í Suður-Þingeyjarsýslu er komin út og var því fagnað á samkomu sem haldin var á Breiðumýri í Reykjadal fyrr í vikunni. | |
| 22:08 | Hafa sótt um að þrefalda stærð Stjórnarráðsins 92 Sótt hefur verið um leyfi til að reisa 1.685 fermetra skrifstofubyggingu við Stjórnarráðshúsið við Lækjargötu. Fyrirhugað er að byggingin verði á tveimur hæðum auk kjallara og tengist austurhlið Stjórnarráðshússins með tengigangi. | |
| 20:44 | Claude við Einar Örn: Hver ert þú? 100 „Ég spurði Claude til gamans hvað Purrkur Pillnikk væri og þurfti að leiðrétta alls konar rangfærslur. Claude varð ægilega miður sín og baðst velvirðingar. Hafði líka orð á því að ég væri augljóslega með yfirburðaþekkingu á viðfangsefninu. Spurði svo: „Hver ertu?““ | |
| 20:42 | Inga Sæland heiðruð með gulluglunni 66 Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, fékk gullugluna, heiðursmerki Menntaskólans á Akureyri, þegar hún heimsótti skólann í gær. | |
| 17:17 | Skrifstofa lögmanna verði hótel 59 Lögmannafélag Íslands áformar að breyta skrifstofubyggingu félagsins í Álftamýri 9 í hótel eða gistiheimili. Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur tekið jákvætt í erindið, en þó með skilyrðum. | |
| 16:41 | Kjósa um slit félaga Pírata á sveitarstjórnarstigi 71 Tillagan verður tekin fyrir á aðalfundi Pírata. | |
| 16:28 | Íslandsferð með meintri hjákonu dró dilk á eftir sér 94 Tveir erlendir ríkisborgarar, karl og kona, hafa verið dæmdir í fimm og þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir peningaþvætti. Við skýrslutökur breyttist framburður þeirra beggja iðulega en maðurinn sagði konuna hjákonu sína á meðan konan sagði þau ætla að gifta sig. | |
| 15:00 | Verkefnið sem hófst á Twitter stækkað umtalsvert 42 Um 2.400 þátttakendur frá yfir 150 skólum um allt land sækja nú rafræna ráðstefnu um skólamál. Verkefnið hófst með samtali kennara á samfélagsmiðlinum Twitter en hefur vaxið gríðarlega á undanförnum árum. | |
| 14:32 | Telur Icelandair með „loforð uppi í erminni“ 69 Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, telur að stjórnvöld muni grípa inn í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair áður en til verkfalls kemur þann 23. september næstkomandi. | |
| 14:11 | Allir dómarar vanhæfir í máli ljósmóður á eftirlaunum 42 Allir dómarar Héraðsdóms Reykjavíkur eru taldir vanhæfir til að dæma í máli um skerðingu lífeyrisréttinda ríkisstarfsmanna þar sem þeir eru sjálfir sjóðfélagar í sama lífeyrissjóði. Þeir gætu haft verulega fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðunni. | |
| 13:41 | „Aðallega framsetningin sem er athyglisverð“ 49 Eiríkur Bergmann ræddi við mbl.is um samkomulag Bandaríkjanna og Danmerkur um Grænland. | |
| 13:16 | Leyfi Trump að líða eins og sigurvegara þó hann hafi ekkert unnið 54 Bandaríkin og Danmörk hafa komist að samkomulagi um framtíð varnarmála á Grænlandi. Blaðamaður telur dönsk stjórnvöld hafa náð sínum markmiðum og alþjóðastjórnmálafræðingur segir Grænlendinga rólega yfir tíðindunum. | |
| 12:52 | Telur stjórnvöld ætla að grípa inn í kjaradeiluna 44 Líklegt er að stjórnvöld grípi inn í kjaradeilu flugvirkja og Icelandair, að mati formanns Flugvirkjafélags Íslands. Hann telur stjórnendur flugfélagsins vera með loforð uppi í erminni um að deilan verði leyst.Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, var gestur í Vikulokunum á Rás 1 og 2 í morgun. Að öllu óbreyttu og náist samningar ekki ætla flugvirkjar í ótímabundið verkfall aðfararnótt 23. september, eftir fjóra daga.Óskar segir Icelandair ekki hafa komið með neitt nýtt að borðinu á fundi þeirra hjá ríkissáttasemjara í gær. „Það var alveg núll áhugi fyrir að ná samkomulagi.“Ríkissáttasemjari hafi velt upp leiðum til að leysa deiluna en þær hafi ekki hugnast flugvirkjum. Flugvirkjar áttu frumkvæði að fundinum í gær en annar fundur hefur ekki verið boðaður.Óskar segir að Icelan | |
| 10:34 | Árás sundþjálfara: Varð að leita á bráðamóttöku 63 Árás sundþjálfarans átti sér stað í fyrradag. | |
| 10:27 | Allir dómarar vanhæfir vegna ljósmóður á eftirlaunum 59 Allir dómarar við Héraðsdóm Reykjavíkur verða að víkja sæti í skaðabótamáli sem kona hefur höfðað gegn ríkinu. Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms þessa efnis fyrir helgi.Konan krefst bóta vegna breytinga sem gerðar voru á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins 2016. Þessi lagabreyting gerði stjórn sjóðsins kleift að skerða lífeyrisréttindi félaga í A-deild 2023 vegna hækkandi lífaldurs og ákvörðunar um að miða réttindasöfnun félaga við væntan lífaldur.Kona sem var ljósmóðir um áratugaskeið og er komin á eftirlaun segir að með þessu hafi greiðslur sjóðsins til hennar lækkað um 9,9 prósent að meðaltali. Þetta vill hún að ríkið bæti sér. ALLIR Í SAMA SJÓÐI Skaðabótamál konunnar var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur. Allir dómararnir eiga það sameiginlegt með konunni sem ste | |
| 10:01 | Rekstrarstjóri hafna hættir 43 Rekstrarstjóri hafna í Norðurþingi hefur sagt starfi sínu lausu og segir að miðað við núverandi umsvif sé ekki forsvaranlegt að halda úti sérstöku starfi rekstrarstjóra hafna í sveitarfélaginu. „Með hagsmuni hafnanna og sveitarfélagsins að leiðarljósi hef ég því sagt starfinu lausu | |
| 09:40 | Fann blóðföður sinn fimmtug 41 Faðerninu var haldið leyndu fyrir Ingu Ósk Ólafsdóttur alla tíð. Þegar hún var fimmtug komst hún að sannleikanum og hitti bandarískan föður sinn í fyrsta og eina sinn en hann lést ári síðar. Hún er þakklát fyrir að hafa hitt hann en leið að hafa misst af hálfri öld með honum. | |
| 07:24 | Reykjavíkurtjörn skarti nýjum hólmum 41 Til stendur að gera endurbætur í og við Tjörnina í Reykjavík. Meðal annars verða útbúnir nýir hólmar í suðvesturhluta hennar. Áformin voru kynnt á fundi í umhverfis- og skipulagsráði í vikunni. Tillögurnar eru unnar af teiknistofunni Landmótun | |
| 07:13 | ESB þegir um stöðu Íslands 40 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) vill ekki svara því hvort Ísland hafi stöðu gagnvart aðildarferli sambandsins eða hver hún er. Í svari við fyrirspurn Morgunblaðsins kemur einungis fram að Ísland sé náið samstarfsríki ESB |