Bæjarstjóri Kópavogs vill kalla eftir læknisvottorðum hjá starfsfólki sem er ítrekað frá vegna skammtímaveikinda. Mat trúnaðarlæknis gæti haft áhrif á greiðslu veikindalauna ef starfsmaður skilar ekki fullnægjandi vottorði. Árlegur veikindakostnaður Kópavogsbæjar er í kringum tveir milljarðar króna. Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar.