Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir ríkisstjórnina hafa brugðist í efnahagsmálum. Tvö glötuð ár séu að baki, mikilvægt sé að draga úr verðbólgu með skynsömum hætti en ekki með því að kæfa efnahagslífið. Hún sakar ríkisstjórnina um þrengja að landsbyggðinni og skapa óvissu um stjórn Landsvirkjunar.