Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem viðurkennt hefur innbrot í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi, sakar fyrirtækið um að ljúga að fjölmiðlum í myndbandi sem hann hefur birt á samfélagsmiðlum.Alls hefur Einar Logi birt tvö myndbönd eftir að hann viðurkenndi að hafa brotist inn í bú Stjörnugríss tvisvar, bæði í maí og svo aftur 2. september.Hægt er að sjá myndband Einars Loga hér fyrir neðan. Varað er við efninu sem birtist í myndbandinu.25 ára karlmaður sem hefur viðurkennt tvö innbrot í svínabú fyrirtækisins Stjörnugríss sakar fyrirtækið um að ljúga að fjölmiðlum um ástand svína í búum sínum.Í yfirlýsingu sem Stjörnugrís birti í gær var fyrra innbrot Einars Loga fordæmt sem dýraníð og sagt að það hafi valdið dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða.Geir Gunnar Geirsson forstjóri