Há skólagjöld á nemendur sem koma frá löndum utan Evrópska efnahagssvæðisins gætu veikt heilbrigðiskerfið og minnkað gæði heilbrigðisþjónustu.Þetta segir Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga (Fíh). Háskóli Íslands hefur birt yfirlit um skólagjöld sem nemendur sem koma utan EES verða að greiða til að stunda nám við skólann. Upphæðirnar nema frá 1,45 milljónum króna upp í 3,25 milljónir fyrir veturinn.„Maður hefur áhyggjur af því að það verði færri hjúkrunarfræðingar sem munu sjá hag sinn í því að koma til Íslands að starfa. Og síðan kannski ekki síður mikilvægt hefur maður áhyggjur af því að íslenskukunnátta verði lakari og minni við þessa breytingu hjá hjúkrunarfræðingum sem koma hingað til starfa,“ segir Helga. 700 ERLENDIR HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Erlendir hjúkr