Stjörnugrís hefur hagnast um nær einn og hálfan milljarð króna á síðustu þremur árum og er eiginfjárstaða fyrirtækisins afar sterk. Stjórnvöld heimiluðu í árslok 2024 að svínabændur fengju þriggja ára viðbótarfrest til að uppfylla kröfur um aðbúnað dýranna, meðal annars vegna þess að svínabændur skorti fjármagn til nauðsynlegra endurbóta.