1.157 hafa skrifað undir lista til að mótmæla fyrirhuguðu vindorkuveri að Hnotasteini, milli Kópaskers og Raufarhafnar. Franska fyrirtækið Qair hyggst reisa þrjátíu tvö hundruð metra háar vindmyllur að Hnotasteini á Hólaheiði í Norðurþingi. Sveitarstjórn Norðurþings vill að virkjunin verði sett í nýtingarflokk en sem sakir standa er hún í biðflokki.Einn þeirra sem hafa mælt hvað harðast gegn vindorkuverinu er Elvar Árni Lund, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs Norðurþings.„Það hefur komið góð gagnrýni frá minnihlutanum. En meirihlutinn virðist ekki vilja sjá neitt nema þetta og þeir hafa bara tekið einhliða afstöðu með Qair snemma í málinu. Málið virðist hreinlega verið rekið þannig að það er ekki hlustað á neitt nema þeirra skoðanir.“ NÁTTÚRU- OG DÝRAVERNDUNAR SJÓNARMIÐ RÁÐI FÖR