Fékk upplýsingar um stöðu turnsins sem bregðast þurfti við

Vonir standa enn til að Radisson Red hótelið við Skúlagötu verði klárað og það opnað gestum. Arion banki segir að bankinn hafi þurft að bregðast við í ljósi upplýsinga sem fram hafi komið á síðustu dögum.Líkt og fréttastofa greindi fyrst frá í gær voru allar framkvæmdir við hótelturninn á Skúlagötu stöðvaðar á mánudaginn og verktakar beðnir um að yfirgefa byggingarstað þar sem búið var að loka fyrir frekari fjármögnun á framkvæmdum. Arion banki er aðalkröfuhafi og þar á bæ er skoðað hvernig hægt er að bjarga sem mestum verðmætum. Arion banki segir í stuttu svari við fyrirspurn fréttastofu að á síðustu dögum hafi komið fram upplýsingar varðandi framkvæmd og stöðu verkefnisins sem bankinn hafi þurft að bregðast við. Málið sé í viðeigandi farvegi og unnið sé að lausn þess.Miklir fjármunir eru
Fékk upplýsingar um stöðu turnsins sem bregðast þurfti við

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar