Orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um skrif Heimis Más Péturssonar, framkvæmdastjóra Flokks fólksins, sem hún lét falla á Alþingi í gær hafa valdið rússneska sendiráðinu bæði undrun og harmi, að því er fram kemur í færslu á Facebook-síðu sendiráðsins. SKRIF UM HERMENN OG KJARNORKUVOPN RÖTUÐU INN Á ÞING Heimir Már skrifaði athugasemd við færslu Emmanuels Macrons, forseta Frakklands, og hvatti hann til að senda hermenn til Úkraínu til að berjast við Rússa og hafa kjarnorkuvopnin tilbúin. Hann eyddi síðar færslunni og baðst afsökunar.Stefán Vagn Stefánsson, varaformaður Framsóknarflokksins, spurði utanríkisráðherra út í orð Heimis Más. Hann sagði þau geta valdið Íslandi orðsporsáhættu. Þorgerður Katrín sagðist ekki sjá ástæðu til að elta ólar við færslu Heimis Más. Hún