Veðrun var tekin að hrjá límmiða með myndum af bílum mannlega ásjónu í gluggum „Vitans“ svonefnda við bílastæðahús við Vitatorg í Reykjavík og því þótti Bílastæðasjóði nauðsynlegt að fjarlægja þá.Fjarlæging miðanna er hluti af vinnu Bílastæðasjóðs við að bæta og fríska upp á ásýnd bílastæðahúsanna. Þetta kemur fram í skriflegu svari verkefnastjóra samskipta hjá Reykjavíkurborg.Við greindum í gær frá undirskriftasöfnuninni sem nágrannarnir Máni Sigurðsson og kærasta hans hrundu í framkvæmd þar sem hvatt er til þess að einni myndanna sem eftir lifir verði hlíft og hinar settar upp aftur. Söfnuninni er ætlað að standa í einn mánuð. Mikilvægt væri að halda í eitthvað af því sem skapar sálina í borginni, eitthvað skrýtið sem fólki væri farið að þykja vænt um. Borgin segir ljóst að margir tengi