Utanríkisráðuneytið hefur fengið þrjá lögmenn til liðs við sig vegna málshöfðunar Eftirlitsstofnunar EFTA gegn íslenska ríkinu vegna bókunar 35 við EES-samninginn. Stjórnvöld hyggjast óska eftir fresti fram yfir áramót til að skila málsvörn sinni. Enn hefur ekki verið ákveðið hvort Ísland muni hafna ásökunum ESA eða viðurkenna brot á EES-samningnum.