Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Landsréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur um að sýkna íslenska ríkið af kröfu manns sem hefur staðið í deilu við það um það hvar hann átti að borga skatta á þriggja mánaða tímabili árið 2012.Maðurinn fluttist ásamt fjölskyldu sinni til Bretlands árið 2012. Hann var farinn út í maí en fjölskyldan fylgdi á eftir í ágúst.Maðurinn og íslenska ríkið deildu um það hvort skattfesti hans hefði haldist á Íslandi þangað til fjölskyldan flutti út eða færst til Bretlands um vorið. Áður en fjölskylda mannsins flutti frá Íslandi dvaldi hann á breskum herragarði endurgjaldslaust í eigu viðskiptafélaga síns.Maðurinn hafði átt aðild að samningi í júní 2012 sem færði honum talsverða fjármuni sem sættu hvorki skattlagningu á Íslandi né í Bretlandi að mati ríkisskattstjóra. Maðu