Hefur fundið hundruð vodkapela við Hvalfjarðarveg

„Er virkur alkóhólisti á meðal vor?“ Svona byrjar færsla Sigurbjörns Hjaltasonar, íbúa í Kjósarhreppi, á umræðusíðu íbúa sveitarfélagsins á Facebook. Sigurbjörn hefur orðið var við vodkapela og bjórdósir í vegakantinum við land sitt nánast daglega undanfarin fjögur ár. Flöskurnar skipta hundruðum segir hann.Sigurbjörn birti færsluna til að reyna að ná til sökudólgsins og biðja hann um að hætta að fleygja flöskunum í náttúruna. Í samtali við fréttastofu segist hann ekki hafa hugmynd hver sá hinn sami sé. > Ég hafði ákveðna grunaða en þeir eru allir dánir eða hættir að drekka. Flöskurnar finni hann mest á svipuðu svæði á Hvalfjarðarvegi, frá Göngum og inn eftir Kjósinni. Hann telji því að einstaklingurinn sé að drekka við akstur og fleygi pelunum út um gluggann til að fela drykkjuna. Það s
Hefur fundið hundruð vodkapela við Hvalfjarðarveg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd·Skilmálar