Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra sagði á Alþingi í dag að hann hefði sjálfur spurt um lokagreiðslu ríkisins vegna kaupa á hlut Landsvirkjunar í Landsneti. Hann bar spurninguna upp á fundi með stjórn Landsvirkjunar í fjármálaráðuneytinu 6. janúar. Hörður Arnarson, þáverandi forstjóri fyrirtækisins, sat ekki fundinn.